Linda Ben

Fallegur og elegant jarðaberja trifle eftirréttur

Recipe by
2 tímar
Prep: 15-30 mín | | Servings: 6 manns

Trifle er kaldur eftirréttur sem inniheldur vanillu svampbotn með sultu, custard og rjóma.

_MG_2810

Þessi trifle er einstaklega góð og sparileg. Þetta er mjög elegant eftirréttur sem á vel við þegar á að gera sérstaklega vel við sig.

_MG_2800

Oft eru trifle bornar fram í stórum skálum og svo skammtar hver sér eins og hann vill. Mér finnst þó alltaf skemmtilegra að útbúa einstaklings eftirrétti, þá fæ hver og einn fallegan rétt tilbúin í skál, glasi eða á diski.

_MG_2811

Ég notaðist við hvítan svampbotn, jarðaberja sultu, sherry, fersk jarðaber, custard, rjóma og sítrónubörk til þess að útbúa þennan eftirrétt.

_MG_2777

_MG_2778

_MG_2780

_MG_2784

_MG_2785 copy

_MG_2787

_MG_2790

_MG_2817

_MG_2823

_MG_2826

_MG_2835

Hægt er að notast við hvaða góða svampbotn sem er, hér er mjög sniðugt að stytta sér smá leið og kaupa kökumix.

Það er einnig sniðugt að gera kökuna og custard-ið einum til tveimur dögum á undan og minnka þannig stress við eldamennskuna. Þá er bara eftir að raða réttinum saman sem tekur um það bil 15-30 mín.

Elegant jarðaberja trifle:

  • Hvítur svampbotn (kaupið tilbúinn, notið kökumix eða notið uppskriftina sem þið finnið hér)
  • Jarðaberja sulta
  • 6 msk Harvey’s Bristol Cream Sherrý
  • 300 g fersk jarðaber
  • 4 eggjarauður
  • 4 tsk kornsterkja eða kartöflumjöl
  • 2 msk sykur
  • 470 ml nýmjólk
  • 1 tsk vanilludropar
  • Rjómi
  • Sítrónubörkur af 1 sítrónu

Aðferð:

  1. Bakið svampbotn samkvæmt leiðbeiningum og kælið hana svo. Á meðan kakan er inn í ofni, útbúið þá custard-ið.
  2. Blandið saman eggjarauðum, kornsterkju og sykri.
  3. Hitið mjólkina í potti þangað til hún er orðin volg, hellið henni þá í mjórri bunu út í eggjarauðu blönduna í mjórri bunu á meðan þið hrærið.
  4. Hellið svo eggja-mjólkurblöndunni aftur ofan í pottinn og hitið að suðu á meðan þið hrærið stanslaust í pottinum. Slökkvið strax undir pottinum þegar suðan er komin upp og blandan er orðin þykk.
  5. Setjið kremið í skál og leggið plastfilmu þétt við kremið, geymið inn í ísskáp þangað til komið er að því að raða saman eftirréttinum.
  6. Skerið svampbotninn þvert í tvennt, smyjið jarðaberja sultu á annan helminginn og lokið kökunni aftur.
  7. Með dessert glasinu, skerið út kökuna eins og sjá má á mynd hér fyrir ofan, hvolfið glasinu og þrífið glasbrúnina með hreinni tusku. Ef þið viljið bera réttinn fram á disk þá er hægt að nota smákökuform til að skera út kökuna.
  8. Setjið 1 msk af sherrý á hverja köku, reynið að bleyta hana allstaðar jafn mikið (notið teskeið ef ykkur finnst betra en þá þarf 3 teskeiðar)
  9. Skerið jarðaberin í sneiðar (skiljið 6 heil jarðaber eftir sem skraut) og skiptið þeim á milli glasa. Raðið nokkrum jarðaberjum á hlið kökunnar.
  10. Setjið 2-3 msk af custard í hvert glas.
  11. Þeytið rjómann og setjið 1-2 msk af rjóma í hvert glas.
  12. Setjið heilt jarðaber ofan í hvert glas og skreytið með rifnum sítrónuberki.

Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben

Ég minni þig á að fylgjast með mér á Instagram en þar er ég oft að elda og baka og sýni “step-by-step” frá matseldinni. Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!

_MG_2796

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5