Linda Ben

Fljótlegur og djúsí kjúklingaréttur með ritz kexi sem slær alltaf í gegn

Recipe by
50 mín
Prep: 10 mín | Cook: 40 mín | Servings: 4 manns

Þessi kjúklingaréttur slær alltaf í gegn, hann er svo fljótlegur og góður.

Maður þarf lítið sem ekkert að hugsa á meðan hann er útbúinn, bara skella hráefnunum ofan í eldfast mót, setja inn í ofn og láta matinn elda sig sjálfann.

Einfaldur kjúklingaréttur með sætum kartöflum, spínati og ritz kexi

Einfaldur kjúklingaréttur með sætum kartöflum, spínati og ritz kexi

  • 1 stór sæt kartafla
  • heill stór poki af spínati
  • 4 kjúklingabringur
  • salt
  • pipar
  • kjúklingakrydd
  • 1 krukka fetaostur
  • 2 lúkur ritz kex, brotið

Aðferð: 

  1. Stillið ofninn á 200°C.
  2. Flysjið kartöfluna og skerið niður í litla búta. Setjið í stórt eldfast mót.
  3. Skolið spínatið og setjið það yfir sætu kartöflurnar.
  4. Steikið kjúklinginn létt, kryddið hann með salt, pipar og kjúklingakryddi. Setjið kjúklinginn svo yfir spínatið.
  5. Dreyfið fetaostinum yfir kjúklinginn.
  6. Myljið ritz kexið yfir kjúklinginn.
  7. Setjið kjúklinginn inn í ofn og bakið í 40 mín.

Ég elska að sjá réttina sem þið gerið með uppskriftunum mínum og því hvet ég ykkur til að merkja myndirnar ykkar #lindulostæti 

Fylgist með á Instagram!

Einfaldur kjúklingaréttur með sætum kartöflum, spínati og ritz kexi

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5