Linda Ben

Fylltar fajita kartöflur

Recipe by
| Servings: 4 manns

Það tekur styttri tíma að elda þennan rétt en maður mætti halda og hann er líka mikið einfaldari en hann lítur út fyrir að vera.  Kartöflurnar eru settar inn í örbylgju í nokkrar mín sem flýtir eldunarferli þeirra um allavega helming. Bragðið lætur ekki á sér standa og mæli ég með að hafa nóg af avocadó og kóríander með, það er bara svo ótrúlega gott!

_MG_8235

_MG_8238

_MG_8242

_MG_8245

Það er auðveldlega hægt að sleppa kjúklingnum í þessum rétt og þá ertu komin með dýrindis grænmetisrétt.

Fylltar fajita kartöflur

  • 2 sætar kartöflur
  • 2 kjúklingabringur
  • Fajita kryddblanda
  • 1 dós pinto baunir
  • ½ laukur
  • 1 paprika
  • Rifinn ostur
  • 2 avocadó
  • Sýrður rjómi
  • Lime
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C
  2. Skerið kartöflurnar þvert í helminga, stingið í þær með gaffli eða hníf og gerið mörg göt.
  3. Ef þið viljið flýta fyrir eldamennskunni þá vefjiði hverjum kartöflubitanum inn í nokkur lög af eldhúspappír, setjið á disk og inn í örbylgju í 7 mín. Byrjið að útbúa fyllinguna á meðan (skref 4-6). Passið ykkur við að taka eldhúspappírinn af því það myndast mikil gufa frá kartöflunni. Þegar þessar 7 mín eru liðnar setjiði kartöflurnar inn í ofn á meðan þið klárið að útbúa fyllinguna eða þangað til þær eru orðnar mjúkar í gegn.
  4. Skerið kjúklingabringunar smátt niður, kryddið með fajita kryddblöndu og steikið þangað til kjúklingurinn er eldaður að utan en ekki að innan.
  5. Skerið laukinn niður og setjið út á pönnuna, steikið.
  6. Skerið paprikuna niður og setjið út á pönnuna, steikið.
  7. Takið kartöflurnar út úr ofninum og takið allt innan úr þeim, skiljið hýðið eftir heilt á ofnplötunni. Hrærið innihaldið saman við fajita blönduna og setjið allt saman aftur ofan í kartöfluhýðið. Setjið rifinn ost yfir og aftur inn í ofn þar til osturinn er orðinn gullinn.
  8. Skerið avocadóið í bita og dreifið því yfir kartöflurnar ásamt sýrða rjómanum og kóríander. Skerið lime í báta og kreystið yfir eftir smekk.

Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben.

Fylgistu með á Instagram!

_MG_8239

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5