Linda Ben

Hægeldaðir lambaskankar í rauðvínssósu

Hægeldaðir lambaskankar í  rauðvínssósu

Hægeldaðir lambaskankar í  rauðvínssósu

Hægeldaðir lambaskankar í  rauðvínssósu

Hægeldaðir lambaskankar í  rauðvínssósu

  • 4 lamba skankar
  • Salt og pipar
  • Steikingarolía
  • 1 rauðlaukur
  • 6 frekar litlar ísl gulrætur
  • 100 g sveppir
  • 1 paprika
  • 7-8 hvítlauksgeirar
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • 1 kúfuð tsk tómatpúrra
  • 2 dl bragðmikið rauðvín
  • 1 l vatn
  • 3 tsk fljótandi nautakraftur
  • 3 tsk fljótandi kjúklingakraftur
  • 3 greinar ferskt timjan
  • 6 greinar ferskt rósmarín

Aðferð:

  1. Kryddið lambaskankana með salti og pipar, steikið á heitri djúpri pönnu/potti upp úr olíu á öllum hliðum til að loka kjötinu. Takið kjötið af pönnunni.
  2. Skerið rauðlaukinn og steikið létt, skerið gulræturnar niður og bætið þeim á pönnuna, skerið sveppina og paprikuna og bætið á pönnuna. Pressið hvítlauksgeirana út á pönnuna og steikið létt.
  3. Setjið hakkaða tómata og tómatpúrru á pönnuna og blandið öllu vel saman.
  4. Bætið 2 dl af bragðmiklu rauðvíni á pönnuna ásamt vatni, nautakrafti og kjúklingakrafti. Náið upp suðu og bætið svo lamba skönkunum út í ásamt ferskum kryddjurtum, setjið lokið á pottinn og leyfið að malla í 2 klukkutíma.
  5. Takið lokið af pottinum og leyfið að malla rólega í 30 mín í viðbót.
  6. Hér er hægt að taka pásu og leyfa pönnunni að bíða yfir nótt í ísskáp eða halda beint áfram.
  7. Takið kjötið upp úr pönnunni og geymið á disk undir álpappír. Sjóðið sósuna í u.þ.b. 15 og kryddið hana til með salti og pipar. Það er smekksatriði hvort þú viljir setja töfrasprota ofan í sósuna og aðeins mauka grænmetið í nokkrar sek, en það er líka hægt að sleppa því.
  8. Berið lambaskankana fram með kartöflumús og sósunni, fallegt að skreyta með fersku timjan.

Hægeldaðir lambaskankar í  rauðvínssósu

Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5