Linda Ben

Heill ofnbakaður veislufugl með stuffing og öllu tilheyrandi meðlæti

Recipe by
2 kist og 30 Mín
Cook: Unnið í samstarfi við Matfugl | Servings: 6 manns

Jæja þá fer alveg að koma að páskunum og mjög margir farnir að velta fyrir sér hvað þeir eigi að hafa í matinn yfir hátíðarnar. Klassískt er að hafa lambalæri en við höfum ekkert endilega verið að halda í þá hefð á mínu heimili. Við höfum verið með allan skalann, nautakjöt, lambakjöt, kalkún, andabringur og hreindýr svo eitthvað sé nefnt.

Veislufuglinn er alveg einstaklega safaríkur og mjúkur! Áferðin líkist miklu frekar kalkún heldur en kjúkling nokkurntíman. Það er minna mál að elda veislufuglinn heldur en kalkúninn sem er klárlega mikill kostur, eldamennskan er léttari og tekur styttri tíma.

Það eru ótal leiðir til þess að elda veislufuglinn, hægt er að fara afar hefðbundna leið og krydda hann með hefðbundnum kryddum eða fara skrefinu lengra og fylgja þessari uppskrift sem ég mæli að sjálfsögðu með.

Það fylgir með afar góð fylling eða stuffing með veislufuglinum en hún er geymd inn í fuglinum, það þarf því að passa að fjarlægja hana úr fuglinum áður en hann er eldaður, það ætti ekki að fara fram hjá neinum við meðhöndlun fuglsins. Fyllinguna er hægt að setja beint í eldfatsmót og elda eða bæta allskonar góðgæti í hana og gera aðeins meira úr henni. Ég valdi að gera hið síðarnefnda og varð gríðarlega ánægð með útkomuna. Ég setti svo fyllinguna í fatið með veislufuglinum og bar það fram saman í einu fati sem kom virkilega fallega út.

Heill ofnbakaður veislufugl með stuffing og öllu tilheyrandi meðlæti

Heill ofnbakaður veislufugl með stuffing og öllu tilheyrandi meðlæti

Heill ofnbakaður veislufugl með stuffing og öllu tilheyrandi meðlæti

  • Veislufugl (u.þ.b. 3,5 kg)
  • 100 g smjör
  • 2 msk ólífu olía
  • 1 dl hvítvín
  • Salt og pipar
  • Oreganó
  • Timjan
  • Papriku krydd
  • 1 sítróna skipt í tvennt
  • Heill hvítlaukur skorinn í tvennt þvert
  • Ferskt rósmarín

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC.
  2. Fjarlægið fyllinguna úr fuglinum, skolið fuglinn og þerrið hann vel með eldhúspappír.
  3. Blandið saman bræddu smjöri, ólífu olíu, hvítvíni og safa úr hálfri sítrónu og hellið yfir fuglinn og inn í hann. Kryddið hann vel með salti, pipar, oreganó, timjan og papriku kryddi. Setjið hálfan hvítlaukshaus inn í holrými fuglsins, hálfa sítrónu og nokkra rósmarín stilka.
  4. Setjið fuglinn í fallegt fat og bakið kjúklinginn inn í ofni í 20 mín við 200ºC. Lækkið hitann svo niður í 150ºC, stejið kjöthitamæli í miðja bringuna á fuglinum og bakið þar til kjarnhiti nær 72ºC (u.þ.b. 40 mín á hver kíló). Útbúið meðlætið á meðan.

Fylling:

  • Fyllingin sem fylgir með veislufuglinum
  • ½ laukur
  • 100 g sveppir
  • 2 gulrætur
  • 3 hvítlauksrif
  • 1 kjúklingateningur
  • u.þ.b. 3 – 4 dl vatn
  • 2 frekar lítil græn epli
  • 1 dl þurrkaðar apríkósur
  • 4 brauðsneiðar
  • 2 plómur
  • 1 dl græn vínber

Aðferð:

  1. Skerið brauðsneiðarnar niður í teninga, raðið á ofnplötu og ristið brauðið inn í ofni í u.þ.b. 5 mín þar það er orðið stökkt.
  2. Skerið laukinn, sveppina og gulrætur smátt niður og steikið á pönnu upp úr olíu. Rífið hvítlauksrifin niður og bætið þeim út á pönnuna ásamt kjúklingakrafti og vatni. Leyfið því að malla í smá stund áður en þið setjið fyllinguna sem fylgir með fulginum út á pönnuna, blandið öllu vel saman.
  3. Flysjið græn epli og skerið í bita, skerið apríkósur í litla bita og bætið á pönnuna ásamt brauðinu, bætið örlitlu vatnið á pönnuna ef ykkur finnst þetta vera of þurrt.
  4. Takið fuglinn út úr ofninum þegar það eru um það bil 30 mín eftir af bökunartímanum, takið mesta af soðinu sem hefur myndast í fatinu og geymið fyrir sósuna. Raðið fyllingunni í kring. Setjið aftur inn í ofn og haldið áfram að baka þar til fuglinn er tilbúinn.
  5. Þegar rétturinn er kominn út úr ofninum, skerið þá plómurnar í sneiðar og vínberin í tvennt, raðið ofan á fyllinguna til að skreyta.

Sætkartöflumús:

  • 3 meðal stórar sætar kartöflur
  • 2 msk smjör
  • ½ tsk vanillusykur
  • 1 egg
  • 1 msk púðursykur
  • ½ dl kasjúhnetur

Aðferð:

  1. Skerið sætukartöflurnar í 3-4 hluta hvor.
  2. Setjið þær í pott ásamt vatni, látið vatnið ná aðeins yfir kartöflurnar.
  3. Sjóðið þangað til kartöflurnar eru mjúkar í gegn.
  4. Flysjið kartöflurnar og setjið þær í hrærivélaskál.
  5. Setjið smjör út í ásamt vanillusykrinum og hrærið.
  6. Með hrærivélina í gangi setjið eggið út í.
  7. Setjið kartöflumúsina í eldfast mót, dreifið púðursykrinum og kasjúhnetunum yfir.
  8. Bakið í um það bil 15 mín eða þangað til sykurinn og hneturnar eru aðeins byrjaðar að brúnast.

Klassísk rjómalöguð kjúklinga sósa

  • ½ laukur
  • 100 g sveppir
  • 50 g smjör
  • 2 dl vatn
  • 250 ml rjómi
  • Soðið sem myndast af kjúklingnum
  • Kjúklingakraftur eftir smekk
  • Salt og pipar
  • Sósuþykkir eftir smekk

Aðferð

  1. Skerið laukinn niður og steikið upp úr smjöri, skerið einnig sveppina og bætið þeim á pönnuna.
  2. Bætið vatni og rjóma á pönnuna, ásamt kjúklingasoðinu, smakkið sósuna til með kjúklingakrafti, salti og pipar. Þykkið sósuna eftir smekk.

Heill ofnbakaður veislufugl með stuffing og öllu tilheyrandi meðlæti

 

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5