Linda Ben

Holl gulrótakaka sem gefur þeirri óhollu ekkert eftir

Recipe by
1 klst og 30 mín
Prep: 30 mín | Cook: 1 klst | Servings: 10-15 manns

Þessi uppskrift inniheldur engan hvítann sykur heldur er notast við vel þroskaða banana og döðlur til að gefa sætu. Hér finnurðu heldur ekkert smjör, í staðinn er notuð sólblómaolía til að gera kökuna mjúka. Næringarlitla hvíta hveitið er heldur ekki að finna hér en í staðinn er notað heilhveiti.

Það besta við þetta alls saman er samt bragðið því hún gefur upprunalegu óhollu kökunni ekki sentímeter eftir, ég lofa því!

IMG_0405

Innihald

  • 3 egg
  • 2 vel þroskaðir bananar
  • 15 ferskar döðlur (án steina)
  • 6 msk sólblómaolía
  • 1 bolli heilhveiti
  • 1 ½ tsk matarsódi
  • 3 tsk kanill
  • ½ tsk múskat
  • ½ tsk kardimommur
  • 3-4 gulrætur (miðstærð, rifnar niður)
  • ½ bolli kókosflögur
  • 1/2 bolli rúsínur (má sleppa)

Aðferð

  1. Byrjað er á að stilla ofninn á 170°C.
  2. Bananar, döðlurnar og olían er sett saman í matvinnsluvél og látið ganga þangað til góð kekklaus blanda hefur myndast.
  3. Egg eru hrærð saman í skál.
  4. Í aðra skál er sett hveiti, matarsódi, kanill, múskat og kardimommur. Allt hrært saman og sigtað ofan í eggjablönduna.
  5. Bananablöndunni er bætt út í og allt hrært vel saman.
  6. Gulrætur eru rifnar gróflega niður og sett út í blönduna ásamt kókosmjölinu og rúsínunum.
  7. Deigið er sett í kökuform, ég notaðist við smelluform sem er 18 cm í þvermál.
  8. Kakan er svo látin bakast í 45 mín. Gott að er að stinga hníf ofan í kökuna áður en hún er tekin út til þess að fullvissa sig um að hún sé tilbúin.

IMG_0416

Krem

  • 400 g rjómaostur
  • 6 msk hunang
  • 1/2 límona
  • 1 dl heslihnetur (má sleppa)
  1. Allt hrært saman í skál þangað til kekklaus og góð blanda hefur myndast.
  2. Kakan er skorin í tvennt til þess að gera hana tveggjalaga. Neðra lagið er sett á kökudisk og svo 1/3 af kreminu sett á kökubotninn.
  3. Efra lagið er lagt ofan á og restin af kreminu borið á kökuna. Kakan er að lokum skreytt með heslihnetum ef þið viljið

IMG_0424

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5