Linda Ben

Hollur og bragðgóður avokadó og peru drykkur

Recipe by
3 mín
| Servings: 2 glös

Þó svo að veturinn sé á næsta leiti þá er ekkert betra en ferskir og góðir ávaxtadrykkir, fullir af vítamínum og orku. Þú þarft aðeins 3 hráefni í þennan lúffenga drykk og þú nærð alveg örugglega að gera hann líka undir 3 mínutum. Einfalt, hollt og gott, þannig á lífið að vera!

Avocadó og peru drykkur

Hollur og bragðgóður avokadó og peru drykkur, uppskrift:

  • 1 Avokadó, steinhreinsað
  • 2 perur, flysjaðar og kjarnahreinsaðar
  • safi úr 1/2 sítrónu
  • Klakar

Aðferð:

  1. Steinhreinsið avokadóið og kjarnahreinsið perurnar. Setjið í stórt Nutribullet glas eða blandara.
  2. Kreistið 1/2 sítrónu út á og fyllið upp að MAX línunni með kökum.
  3. Blandið saman í eins stutta stund og hægt er þannig að allir ávextirnir hafa maukast í drykk.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Avocadó og peru drykkur

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5