Linda Ben

Gómsæt kókos kjúklingasúpa með sítrónugrasi

Recipe by
30 mín
Prep: 10 mín | Cook: 20 mín | Servings: 2 manns

Þessi súpa er rosalega fljótleg og góð, hentar vel á vetrardögum eins og þessum. Súpan er silkimjúk og yljandi, svolítið sterkt með söltum tónum, alveg svakalega góð!

Kókos súpa með kjúkling, uppskrift:

  • 500 ml kókosmjólk
  • 4 sítrónugrös,
  • 3 cm sneið engifer, maukað
  • 1 rauður chillí
  • 8 hvítir sveppir
  • 6 kirsuberjatómatar
  • 2 kjúklingabringur, skornar niður í bitastærðir
  • 2 msk fiskisósa
  • safi í 1 lime
  • Kóríander

Aðferð:

  1. Steikið kjúklinginn létt með salt og pipar.
  2. Hitið kókosmjólkina í potti að suðu.
  3. Skerið sítrónugrösin gróft langsum (svo auðvelt sé að taka úr súpunni áður hún er borðuð).
  4. Skerið sveppina í þunnar sneiðar, skerið chillíið í litla bita, maukið engiferið og bætið út í súpuna ásamt tómötunum.
  5. Setjið kjúklinginn út í súpuna og sjóðið í 5 mín.
  6. Setjið fiskisósu og lime safa út í súpuna.
  7. Setjið súpuna á diska, skreytið og bragðbætið súpuna með kóríander.

Kókos og lime kjúklingasúpa

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5