Linda Ben

Yndislegir Eclair’s – Eins og úr alvöru frönsku bakaríi

Recipe by
2 tímar og 45 mín
Prep: 45 mín | Cook: 2 tímar | Servings: 10 manns

Undanfarið hef ég bakað mikið af frönskum makkarónum og átti ég þess vegna stútfullan ísskáp af eggjrauðum. Ég var ekki lengi að ákveða hvað ég ætti að gera við þær. Ég ákvað að búa til súkkulaði eclair með fyllingu sem krefst hvorki meira né minna en 6 eggjarauða. Ég hafði aldrei búið þetta til áður, en uppskriftin var góð og einföld svo þeir heppnuðust ágætlega. Ef þú átt við sama vandamál að stríða og ég, átt alltof mikið af eggjarauðum eða eggjum þá mæli ég með að þú skellir í þessar dásemdir.

IMG_9385

Fylling:

  • 2 bollar nýmjólk
  • 1/2 vanillustöng, skorið í hana miðja og skofið kornin innan úr
  • 6 eggjarauður
  • 2/3 bolli sykur
  • 1/4 bolli kornsterkja
  • 1 msk ósaltað smjör
  1. Settu mjólkina ásamt vanillukornum í pott og hitaðu að suðu. Slökktu undir pottinum og láttu standa í 15 mín.
  2. Hrærðu saman eggjarauðurnar og sykur þangað til blandan verður ljós og létt.
  3. Bætttu því næst kornsterkjunni út í eggjablönduna og hrærðu þangað til alveg kekklaust.
  4. Settu svo 1/4 bolla af vanillumjólkinni út í og hrærðu hægt saman við, skafðu niður með hliðunum með sleikju svo allt blandist vel. Eftir það seturu sett afganginn af mjólkinni út í og blandað vel.
  5. Settu síðan blönduna í pott, stiltu á miðlungs hita. Hrærðu stanslaust í blöndunni þangað til hún byrjar að þykkna og mynda krem.
  6. Taktu af hellunni þegar blandan nær suðu, hrærðu aðeins lengur til þess að kæla kremið örlítið. Plastaðu kremið vel, gott er að láta filmuna snerta kremið svo það myndist ekki himna ofan á. Settu í kæli í u.þ.b. 2 tíma.

Eclair:

  • 1 bolli vatn
  • 113 g smjör
  • 1/2 tsk salt
  • 1 1/2 tsk sykur
  • 1 bolli hveiti
  • 3 egg + 1 í viðbót ef þarf
  1. Hitaðu ofninn í 220°C.
  2. Settu vatnið í miðlungs til stóran pott ásamt smjörinu, saltinu og sykrinum. Hitaðu að suðu og taktu þá strax af hitanum.
  3. Settu allt hveitið út í í einu og hrærðu því saman við með tréskeið þangað til allt hveitið hefur samlagast.
  4. Settu þá deigið í hrærivélina og notaðu hnoðarann. Hrærðu svolítið í deiginu til þess að það kólni svolítið.
  5. Settu svo eitt egg í einu og skafaðu niður með hliðunum. Þegar þú ert búin að setja 3 egg út í en deigið er ennþá mjög líkt smjörbollu þá seturu eitt egg út í í viðbót, deigið á að vera þykkt en leka samt af hnoðaranum þegar þú takur hann upp úr skálinni.
  6. Settu deigið í sprautupoka með stórum stút. Sprautaðu í lengjur, hafðu 5 cm á milli hverrar lengju, sjá mynd neðar. Penslaðu eggi á hverja lengju áður en þessu er skellt í ofninn.
  7. Bakkelsið er látið vera í ofninum í 15 mín á 220°C en svo er hitinn lækkaður í 190°C í 15 mín, passaðu að opna ekki ofninn á meðan bakkelsið er inni.

Þegar bakkelsið er búið að kólna svolítið þá geriru gat á það á öðrum endanum. Settu fyllinguna í sprautupoka og sprautaðu inn í gatið ágætis magni af fyllingu svo það nái í báða endana.

Súkkulaði:

  • 1/2 bolli rjómi
  • 113 g suðusúkkulaði
  1. Bræddu saman yfir vatnsbaði. Kældu þangað til súkkulaðið hefur náð réttri þykkt en það á að vera þykk fljótandi svo það leki ekki út um allt en dreifist samt vel. Settu það svo á bakkelsið.

IMG_9392

IMG_9396

IMG_9401

IMG_9422

IMG_9429

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5