Linda Ben

Bökuð súkkulaði ostakaka

Recipe by
7 klst og 30 mín
Prep: 30 mín | Cook: 7 klst | Servings: 8 manns

Ostakökur eiga alltaf við, sérstaklega amerískar ostakökur með súkkulaði fudge. Þessi ostakaka er ein sú besta sem ég hef smakkað! Súkkulaðifíklar munu elska þessa, súkkulaði-pekan brownie botn, hefðbundinn amerísk ostakaka með þykku súkkulaði fudge.

IMG_9961
Kakan er mjög einföld í framkvæmd, en það er gott að byrja á henni snemma þar sem hún er betri eftir því lengri tíma hún fær í kæli.
Botn:
  • 1/4 bolli saxaðar pekan hnetur
  • 15 g dökkt súkkulaði
  • 115 g mjúkt smjör
  • 1 bollar sykur
  • 2 stór egg
  • 1/2 bolli hveiti
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1/2 bolli saxað suðusúkkulaði
  1. Byrjað er á að smyrja hringlaga smelluform, 22 cm í þvermál. Ofninn er stilltur á 160°C.
  2. Pekan hnetur eru gróflega saxaðar og dreift í formið.
  3. Næst er botninn útbúinn með því að hræra saman smjör og sykur.
  4. Eggjunum er síðan bætt út í, einu í einu, hrært vel á milli.
  5. Dökka súkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni og síðan sett út í eggjablönduna.
  6. Næst er hveitið sett út í og blandað vel við blönduna.
  7. Að lokum eru settir vanilludropar og saxað súkkulaði, hrært þangað til allt er vel blandað.
  8. Deigið er sett í formið og geymt.

Miðjulag:

  • 450 g mjúkur rjómaostur
  • 1 bolli sykur
  • 4 stór egg
  • 1 tsk vanilludropar
  1. Miðjulagið er útbúið með því að hræra rjómaostinn þangað til hann er orðinn mjúkur og loft meiri.
  2. Sykrinum er bætt út í og svo eggjunum, allt hrært vel saman.
  3. Vanilludropunum er bætt út í og hrært.
  4. Deiginu er hellt yfir botnlagið í forminu og sett í ofninn í 75 mín.
  5. Eftir það er kakan kæld niður í ísskáp í 6-8 tíma í forminu.

Súkkulaðihjúpur:

  • 340 g suðusúkkulaði
  • 250 ml rjómi
  1. Köld kakan er tekin úr forminu og sett á kökudisk.
  2. Súkkulaðihjúpurinn er búinn til með því að hita rjómann og súkkulaðið yfir vatnsbaði og hræra vel saman.
  3. Hjúpurinn er svo kældur aftur niður til þess að fá hann þykkfljótandi og honum svo hellt yfir kökuna. Ég valdi að skreyta kökuna með jarðaberjum en það er um að gera að láta hugmyndaflugið ráða.
Eins og ég sagði áðan þá hef ég hreinlega ekki smakkað betri köku og þá er mikið sagt, það er klárlega eitthvað ávanabindandi í henni!

IMG_9903

Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5