Linda Ben

Einföld jarðaberja grísk jógúrt kaka sem þarf ekki að baka og er merkilega holl

Recipe by
5 kist
Prep: 45 Mín | Cook: 4 tímar í kæli | Servings: Samstarf við Örnu Mjólkurvörur

Þessi gríska jógúrt kaka er silki mjúk og létt eins og ský. Það merkilega er hins vegar að hún er algjörlega með þeim hollari.

Ég sleppti því algjörlega að bæta við auka sykri í hana og því er þetta nokkur veginn það sama og að fá sér gríska jógúrt með rjóma, jarðaberjum og svolítið af oreo ????

Þess vegna hentar þessi kaka mjög vel þegar eftirrétturinn á ekki að vera of sætur eins og til dæmis í barna afmælum, sem léttur eftirréttur og til að auka fjölbreytileikann í veislum.

Jarðaberja jógúrt kaka sem þarf ekki að baka, hollustu kaka

Jarðaberja jógúrt kaka sem þarf ekki að baka, hollustu kaka

Jarðaberja jógúrt kaka sem þarf ekki að baka, hollustu kaka Jarðaberja jógúrt kaka sem þarf ekki að baka, hollustu kaka

Jarðaberja jógúrt kaka sem þarf ekki að baka, hollustu kaka

Jarðaberja jógúrt kaka sem þarf ekki að baka, hollustu kaka

Ég bætti ekki við neinum sykri í þessa uppskrift, hún er því alveg jafn holl og að fá sér jógúrt.

 

Jarðaberja jógúrt kaka sem þarf ekki að baka, hollustu kaka

  • 20 stk Oreo kexkökur (taka kremið af)
  • 70 g smjör
  • 1/3 dl mjólk
  • 250 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
  • 200 g grískt jógúrt með jarðaberja og vanillu bragði frá Örnu Mjólkurvörum
  • 200 g grískt jógúrt með vanillu og kókos bragði frá Örnu Mjólkurvörum
  • 2 gelatín blöð
  • 200 g íslensk jarðaber

Aðferð:

  1. Takið kremið af oreo kexkökunum og myljið.
  2. Bræðið smjörið og blandið saman við kexið. Setjið hringinn af 22 cm smelluformi á kökudisk sem kakan á að vera á. Smyrjið smelluformið með smjöri og klæðið það svo með smjörpappír. Þrýstið kexblöndunni ofan í formið á diskinum þannig það verður alveg þétt, smellið þessu öllu svo inn í frystinn.
  3. Setjið gelatín blöðin í skál með köldu vatni, látið standa í 10-15 mín eða þar til þau eru orðin mjúk.
  4. Setjið mjólk í pott og hitið að suðu (ekki sjóða samt), kreistið vatnið af gelatín blöðunum og setjið út í mjólkina, hrærið í þar til gelatínið hefur bráðnað.
  5. Þeytið rjómann, blandið gríska jógúrtinu saman við varlega með sleikju, blandið svo gelatín mjólkinni saman við varlega sleikju.
  6. Skerið jarðaberin niður og blandið þeim varlega saman við með sleikju, takið formið út úr frystinum og setjið deigið í formið, sléttið vel úr og geymið inn í ísskáp þar til kakan hefur stirðnað upp (4-5 tíma).

Jarðaberja jógúrt kaka sem þarf ekki að baka, hollustu kaka

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5