Linda Ben

Einföld súkkulaði banana kaka með dásamlegu kremi

Recipe by
1 klst og 15 mín
Prep: 25 mín | Cook: 40 mín

Ég nota klassíska bananabrauðs grunninn minn í þessa uppskrift. Það er alveg virkilega ljúffengt og er sérstaklega létt og mjúkt. Þess vegna hefur mér alltaf langað að búa til köku útgáfu af því. Það er ekki mjög sætt og ákvað ég að halda kökunni áfram á þeim nótum.

Þessa köku er algjörlega hægt að bera fram sem hollari útgáfa af hefðbundinni súkkulaðiköku.

Ég nota súkkulaði og kaffi gríska jógúrt frá Örnu í staðin fyrir óbragðbætta jógúrt í þessari köku. Það gefur alveg rosalega gott bragð í kökuna. Ég setti gríska jógúrt einnig í smjörkremið en það kemur alveg stórkostlega vel út! Það er nánast hægt að lýsa því sem súkkulaði útgáfunni af rjómaostakremi, alveg dásamlega gott!

Vegna þess hve kakan er einföld og þægileg að gera, fannst mér eiga vel við hana að smella henni í kassalaga kökuform og halda skreytingunum einföldum líka. Ég notaði litlar hvítar kökuskrauts kúlur og svo ljós fjólubláar og dökk gráar kökuskrauts kúlur.

_MG_6444

_MG_6454

_MG_6457

_MG_6458

_MG_6468

_MG_6474

_MG_6476

Einföld súkkulaði banana kaka með dásamlegu kremi:

  • 4 vel þroskaðir bananar
  • 60 g smörlíki (smjör)
  • 1 egg
  • 2 tsk vanilludropar
  • 100 g sykur
  • 190 g hveiti
  • 1 tsk salt
  • 1 tsk matarsódi
  • 2 msk kakó
  • 200 g grísk jógúrt með kaffi og súkkulaði frá Örnu Mjólkurvörum (heil dós)

Krem:

  • 200 g smjörlíki (smjör)
  • 300 g flórsykur
  • 2 msk kakó
  • 100 g grísk jógúrt kaffi og súkkulaði frá Örnu Mjólkurvörum (hálf dós)

Aðferð:

  1. Byrjið á því að bræða smjörlíkið/smjörið og leyfið því að kólna örlítið niður aftur.
  2. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C.
  3. Setjið banana í hrærivélina og hrærið þá vel saman þangað til þeir eru alveg maukaðir.
  4. Bætið út í skálina eggi og vanilludropum, blandið saman.
  5. Bætið út í skálina sykri, hveiti, salti, matarsóda og kakó, blandið varlega saman.
  6. Bætið svo gríska jógúrtinu og smjörlíkinu/smjörinu saman við.
  7. Takið 20×20 cm form (eða álíka) og smyrjið það vel, hellið deiginu í formið og bakið í um það bil 40 mín eða þangað til kakan er bökuð í gegn.
  8. Kælið kökuna og útbúið kremið á meðan.
  9. Hrærið smjörlíkið/smjörið mjög vel þangað til það er orðið létt og loftmikið.
  10. Bætið þá út í flórsykri og kakó, hrærið mjög vel saman þangað til blandan verður létt og loftmikil.
  11. Bætið þá út í gríska jógúrtinu vel saman við.
  12. Smyrjið kreminu á kalda kökuna og skreytið eftir smekk.

_MG_64,74

Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben

 Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!

Njóttu vel!

Þín, Linda Ben

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur

One Review

  1. Mínerva

    Frábær bananabomba!

    Star

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5