Linda Ben

Kirsuberja og súkkulaði litlar pavlóvur

Recipe by
Cook: 40-50 mín | Servings: 8-10 mini pavlóvur

Það er leikur einn að smella í pavlóvur ef notast er við þessa uppskrift. Mögulega flokkast pavlóvur undir þolinmæðisverk þar sem kökurnar þurfa að kólna inn í ofninum í dágóða stund svo þær springi ekki, en annars eru þær voða einfaldar.

Ég raða því yfirleitt þannig, þegar ég er að fara baka marengs ásamt fleiri kökum, að marengsinn er það seinasta sem ég baka yfir daginn og svo læt ég hann kólna inn í ofninum yfir nótt.

Að mínu mati er rjóminn frá Örnu lang bestur, hann þeytist ótrúlega vel og nota ég hann alltaf í minn bakstur.

Kirsuberja og súkkulaði litlar pavlóvur

Kirsuberja og súkkulaði litlar pavlóvur

Kirsuberja og súkkulaði litlar pavlóvur

Kirsuberja og súkkulaði litlar pavlóvur

Kirsuberja og súkkulaði litlar pavlóvur

Kirsuberja og súkkulaði litlar pavlóvur

Kirsuberja og súkkulaði litlar pavlóvur

Kirsuberja og súkkulaði litlar pavlóvur

Litlar kirsuberja og súkkulaði pavlóvur:

  • 6 eggjahvítur
  • 3,5 dl sykur
  • 2 tsk kornsterkja
  • 2 tsk vanilludropar
  • 2 tsk hvítt borðedik
  • 500 ml rjómi
  • 8-10 msk kirsuberja sósa (ein msk á hverja pavlóvu)
  • 150 g súkkulaði
  • U.þ.b. 30 stk kirsuber

Aðferð:

  1. Stillið ofninn á 120ºC.
  2. Notið fullkomlega hreina hrærivéla skál, setjið eggjahvíturnar í skálina og notið þeytarann.
  3. Blandið kornsterkjunni út í sykurinn, hrærið saman.
  4. Þeytið eggjahvíturnar mjög rólega fyrst, setjið 1 tsk af sykri út í eggjahvíturnar í einu á ca ½ mín fresti, aukið hraðann hægt og rólega eftir því sem þið setjið meiri sykur út í (þolinmæðisverk en þó þess virði).
  5. Blandið saman vanilludropum og hvíta borðedikinu, hellið blöndunni út í þegar eggjahvíturnar hafa náð stífum toppum og hrærið saman við í ½ mín lengur.
  6. Setjið smjörpappír á ofnplötu, setjið 2 msk af marengs, sléttið úr honum og myndið einskonar skál. Gerið skálar úr öllum marengsinum en passið að hafa smá fjarlægð á milli skálanna því marengsinn stækkar örlítið í ofninum.
  7. Bakið í 40-50 mín, slökkvið svo á ofninum en ekki opna ofninn. Látið kökurnar kólna með ofninum. Takið þær út þegar ofninn hefur kólnað fullkomlega.
  8. Þeytið rjómann og bræðið súkkulaðið. Skiptið rjómanum á milli pavlóvanna, setjið 1 msk af kirsuberjasósu ofan á rjómann og svo kirsuber ofan á (mjög sniðugt að skera kirsuberin í tvennt og taka steininn úr), dreifið svo brædda súkkulaðinu yfir.

Kirsuberja og súkkulaði litlar pavlóvur

Ef þú prófar þessa uppskrift, þá þætti mér svo vænt um að heyra hvernig smakkast! Skildu endilega eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben

Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!

Ykkar, Linda Ben

Þessi færsla er kostuð en það hefur ekki áhrif á frásögn mína.

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5