Linda Ben

Sweet chilli stir fry núðluréttur

Recipe by
20 mín
| Servings: 5 manns

Fyrir ekki svo löngu gerði ég smá könnun á Instagram þar sem ég bað fólk um að senda mér hugmyndir af réttum sem það væri til í að sjá meira af. Það voru mjög margir sem báðu um að sjá meira af asískum réttum og því hef ég verið að vinna í því með glöðu geði þar sem þannig réttir eru í miklu uppáhaldi hjá okkur fjölskyldunni.

Sweet Chillí stir fry núðluréttur

Það er nefninlega svo einfalt og þægilegt að smella saman góðum stir fry núðlurétt, sérstaklega þegar maður er að vinna með góð hráefni.

Þessi uppskrift kallar einfaldlega á það að skera öll hráefni smátt niður og smella þeim svo saman á pönnu og steikja létt saman. Setja svo sósu yfir og þá er rétturinn nánast tilbúinn, afar einfalt og þægilegt. Ekta matur sem er fullkomið að hafa í miðri viku.

Þessi uppskrift er frekar stór en það er vegna þess að rétturinn er eiginlega betri daginn eftir, það er því um að gera að elda stóran skammt til þess að eiga afgang daginn eftir.

Sweet Chillí stir fry núðluréttur

Sweet Chillí stir fry núðluréttur

  • 3 kjúklingabringur
  • 1 haus brokkolí
  • 4-5 meðal stórar gulrætur
  • 1 dós mini maís
  • 1 shallot laukur
  • 2-3 hvítlauksgeirar
  • Salt og pipar
  • Þurrkað rautt chillí krydd
  • 2 pokar Sweet chillí wok sósa
  • 1-2 msk ostrusósa
  • 1 pakki eggjanúðlur

Aðferð:

  1. Skerið kjúklingabringurnar niður í litla bita. Kryddið þær með salti og pipar og steikið upp út örlítið af olíu.
  2. Skerið shallot laukinn smátt niður og setjið á pönnuna, steikið. Skerið því næst gulrætur og brokkolí, steikið við meðal hita á pönnunni þar til grænmetið er farið að mýkjast vel, u.þ.b. 7-10 mín.
  3. Setjið vatn í pott og hitið að suðu, bætið því næst núðlunum í pottinn og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum.
  4. Bætið mini maís og smátt söxuðum hvítlauk út á og steikið létt.
  5. Bætið sweet chillí sósunni út á pönnunna og blandið vel saman við, því næst helliði vatninu af núðlunum, setjið þær á pönnuna og steikið allt létt saman í smá stund og bætið ostrusósu út á eftir smekk.

Sweet Chillí stir fry núðluréttur

Ef þú prófar þessa uppskrift, þá þætti mér svo vænt um að heyra hvernig smakkast! Skildu endilega eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben

Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!

Ykkar, Linda Ben

One Review

  1. Gerður

    Mjög einfaldur og góður réttur.

    Star

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5