Döðlugott er löngu orðið frægt konfekt. Það er unaðslega gómsætt, það verða hreinlega allir sjúkir í þetta sem smakka.
Nú kem ég með jóla útgáfu af þessu góðgæti. Ég bætti út í það jólastöfum (bismark) og súkkulaðihúðuðu lakkrískurli, ásamt því að nota ferskar döðlur.
Jóla Döðlugott:
- 400 g döðlur, ég nota ferskar
- 250 g smjör
- 120 g púðursykur
- 3 bollar Rice Crispies
- 10 mini jólastafir (bismark) gróft brytjaðir
- 150 g Súkkulaðihúðað lakkrískurl
- 200 g súkkulaði (ég nota ljóst Chiradelli)
- 5 mini jólastafir (bismark) gróft brytjaðir
Aðferð:
- Ef þið notið ferskar döðlur þá er byrjað á að steinhreinsa þær.
- Setjið steinhreinsuðu döðlurnar í pott ásamt smjörinu og púðursykrinum.
- Sjóðið blönduna saman og notið töfrasprota til að mauka döðlurnar alveg niður í mauk.
- Setjið Rice Crispies út á og blandið saman, leyfið blöndunni að kólna í u.þ.b. 15 mín áður en haldið er áfram.
- Brjótið jólastafina gróft niður og blandið þeim saman við ásamt súkkulaðihúðaða lakkrískurlinu.
- Klæðið eldfast mót eða kökuform með smjörpappír u.þ.b. 20×20 cm í stærð. Þrýstið blöndunni í formið og setjið það í frysti.
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og hellið því yfir döðlugottið.
- Myljið 5 jólastafi og dreifið því yfir súkkulaðið.
- Setjið döðlugottið í ísskáp eða frysti þangað til súkkulaðið hefur harðnað.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu hana á Instagram með #LindaBen
Njótið vel!
Ykkar, Linda Benediktsdóttir
Category: