Einfalt og ljúffengt jólakonfekt sem allir geta gert. Sérstaklega gott að gera þegar maður hefur ekki mikinn tíma til þess að vera dúlla sér í eldhúsinu.
Jóla súkkulaðibörkur, uppskrift:
- 100 g dökkt súkkulaði
- 150 g hvítt súkkulaði
- 1 dl bismark (jólastafa) mulningur
Aðferð:
- Setjið heitt vatn í pott og kveikið undir. Setjið skál eða lítinn pott ofan á stóra pottinn, skálin þarf að standa ofan á stóra pottinum, ná svolítið niður en ekki liggja ofan í vatninu.
- Setjið súkkulaðið ofan í skálina, hrærið smá í súkkulaðinu og látið það bráðna.
- Setjið smjörpappír í form, (ég notaði 20×20 cm eldfastmót), brjótið smjörpappírinn í hliðunum svo hann standi vel ofan í forminu.
- Hellið dökka súkkulaðinu ofan í formið og dreifið því með sleikju eða skeið. Skellið forminu í frystinn, passið að láta það liggja á flötu yfirborði.
- Þrífið skálina sem þið brædduð dökka súkkulaðið í og þurrkið hana mjög vel.
- Setjið hvíta súkkulaðið í skálina og setjið ofan á pottinn, bræðið það.
- Hellið hvíta súkkulaðinu yfir dökka súkkulaðið, dreifið því varlega yfir.
- Brjótið nokkra jólastafi svo það verði u.þ.b. 1 dl af mulningi og dreifið því yfir súkkulaðið.
- Skellið súkkulaðinu í fyrsti eða ísskáp (eftir því hvað þið hafið mikinn tíma) þangað til súkkulaðið hefur harðnað.
- Brjótið súkkulaðið í búta
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: