Linda Ben

Jóla smákökur sem taka þig aftur til baka í fortíðina

Recipe by
2 klst og 35 mín
Prep: 20 mín | Cook: 2 klst og 15 mín

Þessar snjókorna smákökur eru unaðslega góðar! Ég elska líka gamaldags útlitið á þeim, líta svolítið út eins og eitthvað sem amma hefði bakað í gamla daga.

_MG_6125 copy

Innihald:

  • 1 bolli heslihnetuhveiti
  • 2 1/2 bolli hveiti
  • 1 matskeið kanill
  • 1 tsk matarsódi
  • Salt
  • 250 g smjör við stofuhita
  • 1 bolli sykur
  • 1 egg
  • Flórsykur
  • Hindberjasulta

Aðferð:

  1. Byrjað er á að blanda saman þurrefnunum í skál.
  2. Í hrærivélaskál setjið þið smjörið og hrærið þangað til það verður létt og loftmikið.
  3. Þá setjið þið sykurinn útí og hrærið vel.
  4. Næst er eggið sett út í og hrært vel.
  5. Þurrefnunum er svo blandað rólega út í.
  6. Setjið deigið svo í plastfilmu og það kælt í 2 tíma. Það er gert til þess að kökurnar bakist fallega og fái ekki sprungur í sig. Ef þið eruð að flýta ykkur þá skiptið þið deginu í nokkra litla hluta, fletjið þá út og setjið í ísskápinn með plastfilmu, deigið ætti að kælast mun hraðar þannig.
  7. Þegar deigið hefur náð að kólna vel þá setjiði smá hveiti á borðið og fletjið deigið út þangað til það er 0,5 cm á þykkt. Ég notaði smákökuform frá Wilton sem er eins og snjókorn, en auðvitað getið þið notað hvaða smákökuform sem þið viljið.
  8. Raðið svo kökunum á smjörpappír og setjið inn í 170°C heitann ofn í 10-12 mín.
  9. Þegar kökurnar hafa kólnað þá setjið þið hálfa tsk af hindberjasultu í miðja kökuna og dustið flórsykri yfir með sigti. Ég mæli með að setja aðeins sultu á þær kökur sem verða borðaðar strax, setjið hinar ósultaðar í smákökubox og þær munu geymast góðar í 2 vikur.

_MG_6117 copy

Njótið vel!

Ykkar, Linda Ben

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5