Ávaxta maregnsbomba sem er alveg dásamlega góð, sumarleg og sæt.
Svona marengsbombur eru svo þægilegar að gera, maður einfaldlega smellir marengsnum á smjörpappír, dreifir úr honum og býr til einskonar skál. Svo bakar maður marengsinn í ofni í 90 mín. Hægt er að gera marengsinn sjálfan daginn áður og geyma upp á borði með hreinu viskastykki yfir.
Svo býr maður til rjómafyllinguna og hellir í skálina. Svo er kakan skreytt með ávöxtum og berjum.
Ávaxta maregnsbomba
- 4 eggjahvítur
- 1/4 tsk salt
- 1/4 tsk cream of tartar
- 260 g sykur
- 100 g rice crispies
- 500 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
- 1 mangó
- 3 ástaraldin
- 250 g smátt skorin jarðaber
- 50 g rifsber
- Nokkur myntulauf
Aðferð:
- Byrjið á því að kveikja á ofninum og stilla á 140ºC og stilla á undir og yfir.
- Best er að þeyta eggjahvíturnar í alveg tandurhreinni stál skál (smá fita í skálinni getur gert það að verkum að þær þeytast ekki eða mjög illa). Þeytið eggjahvíturnar og þegar þær byrja að freyða setjið þá sykurinn út í og þeytið þar til eggjahvíturnar eru stífþeyttar. Þið vitið að eggjahvíturnar eru tilbúnar þegar þið dýfið þeytaranum ofan í eggjahvíturnar og kippið upp aftur, eggjahvíturnar á þeytaranum eiga ekki að hreyfast.
- Setjið Rice Crispies út í og blandið saman með sleikju.
- Teiknið hring á smjörpappír (best að taka disk sem er 22 cm í þvermál og teikna meðfram diskinum) snúið pennastriks hliðinni niður og setjið deigið á smjörpappírinn inn í hringinn. Myndið skál úr deiginu þar sem hliðarnar eru frekar þykkar og ná hátt upp, gott að nota bakhliðina á skeið til þess að gera ytri hliðar marengsins sléttar.
- Bakið í 90 mín og slökkvið svo á ofninum og leyfið kökunni að kólna með ofninum (sniðugt að gera kökuna að kvöldi og láta kólna yfir nótt og þá er kakan tilbúin næsta dag, en það er alls ekki nauðsynlegt)
- Þeytið rjómann.
- Skrælið mangóið og skerið það í bita, bætið út í rjómann. Takið græna af jarðaberjunum og skerið í bita. Takuð nokkuð jarðaber frá til að skreyta kökuna með á eftir og setjið restina út í rjómann, blandið saman með sleikju.
- Hellið rjómanum ofan í marengstertuna.
- Skreytið með ferskum berjum, ástaraldin og ferskri myntu.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: