Bakað blómkál með kryddjurtasósu sem kemur skemmtilega á óvart.
Bakað blómkál er frábært léttur matur, t.d. hádegismatur borið fram með góðu brauði og hummus. Það virkar einnig sem meðlæti með öðrum mat hvort sem það er með kjötinu, fiskinum eða öðru.
Ef blómkálið neitar að vera skorið í fallegar sneiðar og vill brotna niður í bita, þá er það í góðu lagi, það bragðast alveg jafn vel.
Kalda kryddjurtasósan hentar afskaplega vel með fjölda mörgum mat, til dæmis með öðrum grænmetisréttum, á vefjurnar, með fiskinum eða hverju sem þér dettur í hug.
Bakað blómkál með kaldri kryddjurtasósu
- 1 frekar stór blómkálshaus
- 1/2 dl ólífu olía
- 1 msk mexíkósk kryddblanda
- Furuhnetur
Köld kryddjurtasósa
- 2 msk hafrajógúrt að grískum hætti
- 15 g kóríander
- 15 g steinselja
- 1 hvítlaukur
- Salt og pipar
- 1 msk hlynsíróp
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
- Skerið blómkálið í sneiðar og raðið á ofnplötu. Setjið ólífu olíu í skál ásamt kryddblöndunni, blandið saman og penslið blómkálið á báðum hliðum. Bakið inn í ofni í 20-30 mín eða þar til blómkálið er orðið mjúkt.
- Til að útbúa kryddjurtasósuna setjiði öll hráefni saman í blandara og blandið þar til orðið að sósu.
- Berið blómkálið fram með sósunni ásamt furuhnetum. Það er einnig gott að bera það fram með góðu brauði og hummus.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category:
Prófaði þennan rétt og vá hvað þetta var gott og auðvelt að útbúa. Vorum með í aðalrétt og höfðum kotasölubollur og sallat með.