Linda Ben

Bastogne Tiramisu

Recipe by
10 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes | Servings: 4 manns

Bastogne tiramisu

Ef þú elskar tiramisu en vilt prófa eitthvað aðeins öðruvísi, þá þarftu að smakka þessa útgáfu.

Bastogne kexið gefur eftirréttinum dýpri, karamellukenndan keim sem passar ótrúlega vel með kaffinu og silkimjúku rjómaostakreminu.

Þetta er einföld og fljótleg útgáfa af tiramisu sem þarf hvorki langan undirbúning né tíma í kæli. Kexið mýkist í kaffinu, kremið er mjúkt og loftkennt og kakóið yfir toppar allt með klassískum lokapunkti. Útkoman er eftirréttur sem er bæði elegant og ótrúlega þægilegur að setja saman.

Fullkominn þegar þig langar í eitthvað sætt með kaffinu, fyrir gesti eða þegar þú vilt gera aðeins meira úr einföldu hráefni ☕️✨

Mikilvægt er að dýfa kexinu ofan í kaffið í bara mjög stuttan tíma þar sem kexið dregur svo rosalega vel í sig, við viljum ekki hafa það 0f blautt.

Bastogne Tiramisu

Bastogne Tiramisu

Bastogne Tiramisu

Bastogne Tiramisu

  • Kaffi
  • 8 stk Lu Bastogne kexkökur
  • 3 eggjarauður
  • 50 g sykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 200 g Philadelphia rjómaostur
  • Örlítið kakóduft

Aðferð:

  1. Þeytið saman eggjarauður, sykur og vanilludropa þar til létt og ljóst.
  2. Bætið rjómaostinum út í og hrærið saman við þar til kekklaust.
  3. Takið til fjóra fallega eftirréttadiska.
  4. Dýfið 4 stk Lu Bastogne kexkökunum rétt svo ofan í kaffið í u.þ.b. 2 sek og setjið á diskana. Setjið 1 kúfaða matskeið af rjómaostablöndunni ofan á kexið.
  5. Dýfið aftur kexi ofan í kaffið í 2 sek og leggið ofan á rjómaostablönduna. Setjið það sem eftir er af rjómaostablöndunni ofan á kexið.
  6. Sigtið kakó yfir og berið strax fram.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Bastogne Tiramisu

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5