Linda Ben

Bbq kjúklinga super nachos

Recipe by
50 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes | Servings: 4 manns

Þegar maður vill alvöru stemmings mat með max bragði með lágmarks fyrirhöfn þá eru BBQ kjúklinga super nachos alltaf rétta svarið. Safaríkur kjúklingur í ljúffengri BBQ sósu, stökkt snakk, bráðinn ostur og ferskt jalapenó og kóríander ofan á. Þetta er svona réttur sem hverfur af disknum á nokkrum mínútum.

Fullkomið um helgina, fyrir spilakvöldið, vinkonuboðið eða þegar þú vilt gera eitthvað extra gott án þess að stressa þig.   bbq kjúklinga super nachos

bbq kjúklinga super nachos

bbq kjúklinga super nachos

bbq kjúklinga super nachos

Bbq kjúklinga super nachos

  • 700 g kjúklingalæri
  • 1 tsk hvítlaukskrydd
  • Salt og pipar
  • 1 tsk paprikukrydd
  • Hunt´s Original Bbq sósa
  • 300 g maís snakkflögur
  • 150 g maísbaunir
  • 150 g svartar baunir
  • 150 g rifinn ostur
  • 2 tsk ferskur jalapenó
  • 15 g kóríander

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Skerið kjúklingalærin niður í smáa bita og setjið í stórt eldfast mót ásamt kryddunum og 1 dl bbq sósu, blandið öllu vel saman og eldið í 30 mín eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Ef það kemur mikið vatn af kjúklingnum, hellið því þá af og setjið meira af bbq sósu á kjúklinginn.
  3. Raðið snakkinu á smjörpappírsklædda ofnplötu, dreifið kjúklingnum yfir ásamt gulum og svörtum baunum og rifnum osti. Bakið inn í ofni í 20 mín eða þar til osturinn hefur bráðnað og er örlítið farinn að gyllast.
  4. Skerið jalapenó í þunnar sneiðar á meðan nachosið er inn í ofni og saxið kóríanderið smá niður.
  5. Hellið svolítið af bbq sósu yfir nachosið í mjórri bunu þegar það kemur út úr ofninum. Dreifið jalapenósneiðum yfir og kóríander.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

bbq kjúklinga super nachos

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5