Þegar mig langar í eitthvað sem er bæði fljótlegt, bragðmikið og ferskt þá geri ég oft svona BBQ kjúklingavefjur með stökkum hrásalati. Þetta er svona réttur sem hentar jafnt í léttan kvöldmat, helgarmat, í nesti eða þegar maður vill gera eitthvað einfalt sem öllum finnst gott.
Safarík kjúklingalæri eru fyrst steikt þar til þau verða gyllt og mjúk og svo pensluð með Honey Mustard BBQ sósu frá Hunt’s, sem gefur kjúklingnum sætt og örlítið reykt bragð með mildri sinnepsnótu.
Til að jafna BBQ bragðið geri ég ferskt og stökkt hrásalat úr rauðkáli, hvítkáli og gulrótum með sítrónu og smá mæjónesi. Það gefur vefjunum bæði crunch og ferskleika sem passar fullkomlega með safaríkum kjúklingnum.
Þetta er svona uppskrift sem er auðvelt að setja saman, full af bragði og klárast alltaf fljótt af disknum, sérstaklega þegar maður setur extra af BBQ sósu yfir áður en vefjan er rúlluð 🌯✨




BBQ kjúklingavefjur með fersku hrásalati
- 700 g kjúklingalæri
- Salt og pipar
- Hunts BBQ sósa honey mustard
- Vefjur
Ferskt hrásalat
- 1/4 rauðkálshaus
- 1/4 hvítkálshaus
- 4 gulrætur
- 15 kóríander
- 2 msk mæjónes
- Safi úr 1/2 sítrónu
- Salt
Aðferð:
- Kryddið kjúklingalærin með salti og pipar og steikið á steikningarpönnu. Þegar kjúklingurinn er alveg að verða eldaður í gegn, penslið þá vel af BBQ sósu yfir og steikið aftur á báðum hliðum.
- Útbúið hrásalatið með því að skera þunnt niður rauðkál, hvítkál og gulrætur, mér finnst þægilegast að nota mandolín hér. Setjið í skál ásamt söxuðu kóríander, kreystið smá sítrónusafa yfir, bætið mæjónesinu út á og hrærið öllu saman. Smakkið til með salti.
- Skerið kjúklinginn niður í þægilega bita.
- Setjið vefju á disk, setjið vel af hrásalatinu á vefjuna, kjúkling og meiri BBQ sósu, rúllið upp vefjunni og skerið svo í helming.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar








