Linda Ben

Beikonskinku brauðréttur

Recipe by
30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við sS

Þessi beikonskinku brauðréttur er svona réttur sem slær alltaf í gegn, kósý, bragðmikill og fullkominn þegar maður vill gera eitthvað sem allir elska.

Hér kemur saman safarík beikonskinka og stökkt eðalbeikon frá SS, steikt með lauk, hvítlauk og sveppum sem gefa réttinum dýpt og fyllingu. Sólþurrkaðir tómatar bæta svo við smá sætu og sýru sem jafnar allt út.

Brauðið dregur í sig rjómakennda hvítlauksostasósuna og verður mjúkt og djúsí á meðan osturinn ofan á gyllist og verður fallega stökkur.

Þetta er svona uppskrift sem er algjörlega skothelld í veisluna og er einn af þeim réttum sem klárast alltaf svo það er vissara að gera nóg af þessum brauðrétt!

Það er hægt að undirbúa brauðréttinn fyrirfram, græja hann alveg nema ekki setja inn í ofn, heldur geyma með plastfilmu yfir annað hvort inn í ísskáp eða í frysti. Skella svo í ofninn áður en gestirnir mæta.

Beikonskinku brauðréttur

Beikonskinku brauðréttur

Beikonskinku brauðréttur

Beikonskinku brauðréttur

Beikonskinku brauðréttur

Beikonskinku brauðréttur

Beikonskinku brauðréttur

Beikonskinku brauðréttur

  • 130 g eðalbeikon frá SS
  • 280 g beikonskinka frá SS
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 200 g sveppir
  • 16 brauðsneiðar
  • 150 g sólþurrkaðir tómatar
  • 500 ml rjómi
  • 300 g hvítlauksostur
  • Rifinn ostur

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum 200°C, undir og yfir, og raðið beikoninu á smjörpappírsklædda ofnplötu og bakið í 10 mín eða það er orðið eldað í gegn.
  2. Steikið smátt saxaðan lauk á pönnu, rífið hvítlauksgeirana út á pönnuna. Skerið sveppina niður og bætið út á pönnuna. Skerið skinkuna niður í bita og bætið út á pönnuna, leyfið öllu að malla svolítið á pönnunni.
  3. Setjið rjóma og rifinn hvítlauksostinn í pott og látið ostinn bráðna saman við rjómann, gott að hræra reglulega í.
  4. Skerið brauðið í teninga og raðið öllu í eitt stórt eldfastmót eða 2 minni.
  5. Skerið beikonið niður og bætið út á pönnuna og dreifið svo öllu yfir brauðið. Hellið rjómablöndunni yfir, það gæti verið gott að blanda öllu svolítið saman í eldfastamótinu.
  6. Dreifið rifnum osti yfir og bakið í 20 mín við 180°C, undir og yfir hita.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

Beikonskinku brauðréttur

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5