Linda Ben

Bestu hvítlauks- og pestó spældu eggin

Recipe by
7 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes | Servings: 1 manneskja

Bestu hvítlauks- og pestó spældu eggin

Það þarf ekki flóknar uppskriftir til að gera eitthvað ótrúlega gott, stundum duga nokkur hráefni og rétt aðferð. Þessi spældu egg með hvítlauk og pestói eru fullkomið dæmi um það. Mjúk egg, létt stökkur hvítlaukur og ferskt pestó sem bráðnar yfir. Einfalt en svo bragðmikið.

Hvítlaukurinn fær að gyllast aðeins á pönnunni og gefur eggjunum djúpt, ilmandi bragð án þess að verða of sterkur. Pestóið bætir svo ferskleika og smá „luxury twist“ sem lyftir réttinum upp á næsta level. Með toppingu af chili, vorlauk og steinselju færðu bæði lit, áferð og smá hita.

Mér finnst ótrúlega gott að nota PAM spreyið þegar ég elda egg því með því að nota það get ég verið viss um að ekkert festist á pönnunni og það er leikur einn að þrífa pönnuna eftir á, líka þegar ég nota steypujárns eða stálpönnur.

Þetta er svona réttur sem hentar jafnt í morgunmat, brunch eða léttan hádegisverð, tilbúinn á örfáum mínútum en bragðast eins og meira

Bestu hvítlauks og pestó spældu eggin

Bestu hvítlauks og pestó spældu eggin

Bestu hvítlauks og pestó spældu eggin

Bestu hvítlauks og pestó spældu eggin

Bestu hvítlauks og pestó spældu eggin

  • PAM original
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 3 egg
  • Grænt ferskt pestó
  • Rauður chillí steinselja
  • Vorlaukur

Aðferð:

  1. Skerið hvítlaukinn niður í örþunnar sneiðar.
  2. Spreyið pönnuna með PAM spreyji og setjið hvítlaukinn á pönnu, leyfið honum aðeins að steikjast. Með meðal lágan hita undir pönnunni, brjótið eggin út á pönnuna og  leyfið þeim að eldast rólega þangað til þau eru orðin eins og þú vilt hafa þau elduð.
  3. Takið eggin af pönnunni og setjið á disk. Skerið chillí og vorlauk í sneiðar og setjið ofan á eggin. Bætið einnig grænu pestói yfir og ferskri steinselju.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

Bestu hvítlauks og pestó spældu eggin

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5