Linda Ben

Bláberja acai skál

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur | Servings: 1 skál

Bláberja acai skál sem er stútfull af hollum og góðum andoxunarefnum sem vernda líkamann. Bláber eru virkilega holl fyrir okkur og eru meðal annars þekkt fyrir að vernda líkamann gegn ótímabærri öldrun.

Haust jógúrtið frá Örnu er búið til úr íslenskum bláberjum og bragðast alveg dásamlega eitt og sér. Það er samt alltaf gaman að leika sér smá með matinn og búa til eitthvað nýtt.

Þessi bláberja acai skál saman stendur af frosnum banana sem gerir áferðina á skálinni þykkja og rjómkennda. Út í hana er einnig sett acai duft (keypti í Krónunni en er örugglega til á fleiri stöðum líka eins og Hagkaup og mér finnst Fjarðarkaup líka líklegt), prótein til að auka próteinmagnið ennþá meira og frosin blönduð ber til að ggefa okkur ennþá meira af andoxunarefnum og vítamínum.

Þetta er því algjör heilsubomba sem bragðast hreint út alveg dásamlega.

Bláberja acai skál

Bláberja acai skál

Bláberja acai skál

Bláberja acai skál

  • 1 frosinn banani
  • 1 1/2 dl frosinn blönduð ber
  • Haust jógúrt frá Örnu Mjólkurvörur
  • 2 msk próteinduft (ég nota hreint prótein en það er líka hægt að nota vanillu)
  • 1 tsk acai duft
  • 1 dl klakar
  • Vatn (eins lítið og hægt er, stundum er hægt að sleppa, stundum set ég u.þ.b. 2 msk)

Toppur

  • Bláber
  • Hampfræ
  • Kakónibbur

Aðferð:

  1. Setjið allt í skálina saman í blandara, byrjið á því að sleppa vatninu og blandið. Bætið svo vatni út í eftir þörfum, byrja á 1 msk og auka svo ef þarf.
  2. Setjið blönduna í skál og toppið með bláberjum, hampfræjum og kakónibbum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5