Linda Ben

Bleik rósalímonaðis margarita – kokteill

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes | Servings: 1 drykkur

Ef þú vilt kokteil sem er bæði fallegur og ótrúlega ferskur þá er þessi bleika rósalímonaðis margarita fullkomin!

Hún er létt, sítruskennd og sumarleg.Kllassísk margarita sem samanstendur af tequila, lime og appelsínulíkjör fær hér fallegt twist með rósalímonaði sem gefur drykknum milda sætu, létt blómabragð og þennan fallega bleika lit. Hér nota ég Los Tres Tonos tequila ásamt Cointreau, sem gefur kokteilnum hreint og hágæða bragð.

Sykurbrún á glasinu gerir fyrsta sopann extra góðan og ef þú vilt gera drykkinn enn fallegri er hægt að blanda þurrkuðum ætum blómum saman við sykurinn. Rifsberin setja svo punktinn yfir i-ið og gera kokteilinn bæði litríkan og fágaðan og glæsilegan.

Þetta er svona drykkur sem passar jafnt í saumaklúbbinn, matarboðið, sumarbústaðarferðina eða bara hvenær sem er.Ferskur, fallegur og hættulega auðdrekkanlegur 🍸🌸

bleikur rósa margarita kokteill

bleikur rósa margarita kokteill

Bleik rósalímonaðis margarita – kokteill

  • 30 ml Los Tres Tonos tequila
  • 30 ml Cointreau
  • 15 ml lime safi
  • Rósalímonaði
  • Klakar
  • Sykur fyrir glasbrúnina (ég notaði rauð þurrkuð æt blóm líka í sykurinn en það má sleppa þeim)
  • Rifsber fyrir skraut

Aðferð:

  • Í kokteilhristara setjiði klaka, teqiula, Cointreau og limesafa. Hristið allt vel saman.
  • Strjúkið glasbrúnina með lime til að bleyta hana. Setjið sykur á disk og dýfið glasinu ofan í sykurinn.
  • Setjið klaka í glasið og hellið kokteilnum í gegnum sigti ofan í glasið. Fyllið glasið með rósalímonaði.
  • Skreytið með rifsberjum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

bleikur rósa margarita kokteill

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5