Það er eitthvað svo einstaklega fágað og flott að bera fram blinis með reyktum laxi og kavíar. Þetta er einstaklega ljúffegur smáréttur sem lítur ótrúlega vel út, en hann er líka afskaplega einfaldur. Alveg fullkominn veislu smáréttur til að bera fram hvort sem er í standandi boðum eða með flottur lítill biti í forrétt.
Eins og alltaf þegar maður útbýr einfalda rétti úr fáum hráefnum þá er mikilvægt að hráefnið sé fyrsta flokks.
Reykti laxinn frá Hnýfill er einmitt fyrsta flokks hágæða vara. Fyrirtækið hóf að reykja lax og bleikju árið 1995 og allt ferlið fer fram á Akureyri þar sem handverk, vandvirkni og virðing fyrir hráefninu eru í forgrunni. Laxinn er handflakaður, þurrsaltaður og látinn hvíla áður en hann er kaldreyktur, ekki með reykvökva eins og margir nota, heldur eingöngu með náttúrulegum við eins og beyki. Að lokum fær hann tíma til kælingar og þurrkunar þar sem áferð og bragð ná fullkomnu jafnvægi. Allt ferlið tekur um fimm daga og vörurnar eru án allra auka- og íblöndunarefna, eingöngu salt og náttúrulegur efniviður.
Útkoman er hreint, djúpt en á sama tíma mjög hæfilegt reykt bragð, alveg einstaklega ljúffengt. Laxinn er einstaklega mjúkur og góður líka.
Reyktu afurðirnar frá Hnýfli fást í Hagkaup, Krónunni og Samkaup, svo það er auðvelt að nálgast gæðin, hvort sem þú ert að undirbúa saumaklúbb, afmæli, fermingarveislu, brúðkaup eða bara dekra við þig.
Þessar blinis snittur eru einföld og fáguð lausn þegar þú vilt bera fram eitthvað sem bæði lítur fallega út og bragðast ótrúlega vel!








Blinis snittur með reyktum laxi og kavíar
- Blinis snittur frá Hnýfill
- Rjómaostur
- Beykireyktur lax ffrá Hnýfill – biti eða í sneiðum
- Caviart – svartur kavíar
- Dill
Aðferð:
- Smyrjið blinis snitturnar með rjómaosti, mér finnst gott að hafa svolítið vel af rjómaostinum.
- Skerið laxinn í sneiðar ef þið eruð með heilann bita, en annars getiði skorið laxasneiðarnar í aðeins minni bita. Raðið ofan á hverja snittu.
- Setjið u.þ.b. 1/2 tsk af kavíar á hverja snittu og örlítið af dilli.
- Raðið snittunum á fallegan bakka
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












