Bragðarefur með pipar trompbitum.
Það er svo einfalt og fljótlegt að gera bragðaref heima, en það vita það ekki allir að þeir bragðast nánast eins og út í búð. Ef eitthvað er þá finnst mér heimatilbúnir bragðarefir betri því þá get ég ráðið nákvæmlega því sem ég set í þá og hversu mikið. Það þarf svo varla að nefna það að það er margfalt ódýrara að græja bragðarefi heima heldur en að kaupa þá tilbúna út í ísbúð.
Ég setti nýju pipar trompbitana frá Nóa, súkkulaðiperlur og frosin hindber í þessa bragðarefi og það kom svo ótrúlega vel út. Það er bara eitthvað við lakkrís og hindberja tvennuna sem er algjörlega ómótstæðilegt.
Bragðarefur með pipar trompbitum
- 2 lítrar rjómaís
- U.þ.b. 150 g Trompbitar piparfylltir frá Nóa Síríus + meira til að setja ofan á.
- U.þ,b. 100 g Nóa súkkulaðiperlur
- U.þ.b. 100 g frosin hindber
Aðferð:
- Setjið ísinn í stóra skál eða hrærivélaskál.
- Skerið ttrompbitana í smærri bita, hver biti í u.þ.b. 3 bita og setjið út í ísinn ásamt súkkulaðiperlum. Kremjið frosnu hindberin og setjiið ofan í ísinn líka.
- Hrærið öllu vel saman og skiptið í glös
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar