Burrata og kirsuberja kjúklingasalat.
Þetta salat er alveg einstaklega gott og fékk mikið af hrósum þegar ég bar það fram í matarboði um daginn.
Ferska bragðmikla salatið frá Vaxa er svo gott með tómötum, gulri melónu, kirsuberjum og burrata osti. Ég setti líka sprettur og smátt saxaðar pekanhnetur fyrir kröns og bleytti upp í salatinu með ólífu olíu dressingu til að halda í ferskleikann.
Sumarlegt bragðgott og afskaplega djúsí salat sem öll fjölskyldan elskar.
Burrrata og kirsuberja kjúklingasalat
- 3 kjúklingabringur
- Kjúklingakryddblanda
- 90 g salatblanda frá Vaxa
- 50 g babyleaf frá Vaxa
- 250 g litlir tómtar
- 1/4 gul melóna
- 200 g kirsuber
- 50 g pekanhnetur
- 30 g radísu og sólblóma sprettur frá Vaxa
- 2 stk burrata
Salatdressing
- 1/2 dl ólífu olía
- 1 tsk sterkt dijon sinnep
- 1 tsk hunang
- 1 hvítlauksgeiri
- Salt og pipar
Aðferð:
- Skerið kjúklingabringurnar í litla bita og kryddið vel, steikið á pönnu þar til eldað í gegn.
- Setjið salatblöndu og babyleaf á disk, rífið salatið svolítið í sundur í minni bita.
- Dreifið kjúklingabitunum yfir salatið.
- Skerið tómatana, melónuna og pekanheturnar í bita og dreifið yfir salatið.
- Steinhreinsið kirsuberin og dreifið yfir salatið ásamt sprettum.
- Setjið olíu, sinnep, hunang í krukku, rífið hvítlauksgeirann út í krukkuna, kryddið með salti og pipar eftir smekk og hrisstið saman. Hellið yfir salatið (gott að byrja á að hella helmingnum yfir og blanda öllu saman, smakka og finna hvort maður vilji meiri dressingu).
- Rífið burrata ostinn yfir salatið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: