Linda Ben

Creme brulee vatnsdeigsbollur

Recipe by
2 klst
Cook: Unnið í samstafi við Örnu Mjólkurvörur

Creme brulee vatnsdeigsbollur eru dásamlega góðar bollur fyrir bolludaginn.

Þið sem elskið creme brulee verðið ekki fyrir vonbrigðum með þessar! Creme brulee-ið inn í er silkimjúkt og gott, toppurinn á bollunum er hjúpaður stökkum bræddum sykri sem brotnar og bráðnar upp í manni þegar maður tekur bita.

creme brulee bolludags bollur vatnsdeigsbollur

creme brulee bolludags bollur vatnsdeigsbollur

creme brulee bolludags bollur vatnsdeigsbollur

creme brulee bolludags bollur vatnsdeigsbollur

creme brulee bolludags bollur vatnsdeigsbollur

creme brulee bolludags bollur vatnsdeigsbollur

creme brulee bolludags bollur vatnsdeigsbollur

Creme brulee vatnsdeigsbollur

Creme brulee fylling

  • 650 ml mjólk frá Örnu Mjólkurvörum
  • 5 eggjarauður
  • 80 g sykur
  • 5 msk kornsterkja (maizena mjöl)
  • 1 tsk vanilludropar
  • klípa salt

Aðferð:

  1. Hitið mjólk í stórum potti að suðu.
  2. Setjið egg, sykur og kornsterkju í hrærivélaskál og þeytið þar til samlagað. Hellið helmingnum af heitri mjólkinni út í eggjablönduna í mjórri bunu með hrærivélina í gangi. Hellið svo eggja+mjólkurblöndunni aftur ofan í pottinn ásamt vanilludropum og salti, hitið rólega á sama tíma og þið hrærið stanslaust í pottinum þar til blandan verður þykk og dekkri á litinn. Þetta getur tekið allt að 5 mín.
  3. Hellið blöndunni í ílát og geymið inn í ísskáp þar til orðið kallt, allt að 2 klst. Ekki hafa áhyggjur ef blandan er smá kekkjótt, smellið henni bara í gegnum sigti.
  4. Útbúið vatnsdeigsbollurnar á meðan.

Vatnsdeigsbollur

  • 125 g smjör/smjörlíki
  • 1 msk sykur
  • 275 ml vatn
  • 170 g hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 3-4 egg

Aðferð:

  1. Kveiktu á ofninum og stilltu á 180°C og blástur.
  2. Smjör, sykur og vatn er sett í pott og soðið saman í 2-3 mín. Slökktu svo undir pottinum.
  3. Hveiti, lyftiduft og salt er sett í skál, bættu því út í smjör-vatnið og hrærðu vel saman með sleif. Deigið á að vera þétt og lyftast upp frá brúnum pottsins. Láttu standa í 5 mín. Færðu deigið í hrærivél.
  4. Settu þrjú egg út í deigið, eitt og eitt í einu og hrærðu þau vel saman við deigið. Vegna þess að egg eru misttór eru mismunandi hversu mikið þú þarft af seinasta egginu. Áferðin á deiginu á að vera þannig að deigið lekur hægt og svolítið erfiðlega af sleifinni á nokkrum sekúndum. Deigið á að halda nokkurveginn sömu lögun eftir að þú setur það á plötuna en ekki leka út og verða flatt. Settu seinasta eggið í litla skál og hrærðu það saman. Settu 1 msk af egginu í einu út í og hrærið vel á milli þangað til þú ert komin með rétta áferð á deigið.
  5. Settu smjörpappír á ofnplötu og settu deigið í sprautupoka eða matskeiðar til að útbúa bollurnar (2 msk ein bolla). Hafðu gott pláss á milli bollanna því þær stækka mikið í ofninum, gott að miða við um það bil 12 bollur á hverja plötu.
  6. Bollurnar eru bakaðar í 20-25 mín en ekki opna ofninn fyrr en allavega 20 mín eru liðnar. Þá er hægt að taka eina út og meta hversu margar mínútur bollurnar eiga eftir, en þú sérð það þegar þú opnar bolluna og sérð hversu blaut hún er inní.

Sykurtoppur

  • 200 g sykur
  • 60 ml vatn
  • 1/8 tsk salt

Aðferð:

  1. Setjið sykur, vatn og salt í pott, hitið á meðal hita þar til sykkurkornin hafa bráðnað og blandan orðin ljós gyllt, slökkvið þá undir pottinum.
  2. Stingið hverja bollu með kjötgaffli inn í hliðina og dýfið bollunni ofan í sykurinn þannig að toppurinn á bollunni hjúpist. Leggið bolluna á smjörpappír aftur. Passið að snerta ekki sykurinn og látið hann ekki leka á ykkur því hann er svakalega heitur. Látið sykurinn harðna.

Samsetning

  1. Setjið creme brulee fyllinguna í sprautupoka.
  2. Stingið sprautupokanum inn í bollurnar á hliðinni þar sem bollurnar voru stungnar með kjötgafflinum og fyllið.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

creme brulee bolludags bollur vatnsdeigsbollur

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5