Djúsí ostabrauðbröllur.
Þið eigið eftir að elska þessar djúsí ostabrauðbröllur en þær eru svo góðar!
Maður byrjar á því að skera brauðið að ofan í tígla, passið að skera ekki niður í botninn. Bræðið smjör og bætið út í það hvítlaukskryddi, notið skeið til að koma því alveg ofan í rákirnar á brauðinu en það er líka hægt að nota pensil. Skerið steinselju og bætið henni ofan í rifinn mozarella, troðið svo ostablöndunni alveg ofan í rákirnar. Pakkið brauðinu inn í álpappír en passið að klessa hann ekki upp við brauðið. Bakið inn í ofni fyrst með ápappírinn lokaðan en opnið hann svo til að brúna skorpuna. Berið brauðið fram heitt með pizzasósu og þið
Djúsí ostabrauðbröllur
- Heilt súrdeigsbrauð eða ítalsktbrauð
- 150 g smjör
- 1 msk hvítlaukskrydd
- 230 g rifinn mozarella frá Örnu Mjólkurvörum
- 1/2-1 dl fersk steinselja söxuð niður
- 1-2 dl pizzasósa
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 190°C, undir og yfir hita.
- Skerið tíglamynstur í brauðið með því að skera ofan í það rendur með ca 2 cm millibili en passið að skera ekki alveg í gegn, botninn á að vera heill. Snúið brauðinu og skerið þvert á rendurnar þannig að það myndist tíglar.
- Setjið álpappír undir brauðið, hann þarf að vera það stór að hægt sé að loka álpappírnum þannig að það hylji alveg brauðið.
- Bræðið smjörið og bætið út í það hvítlaukskryddinu. Notið bæði skeið og pensil til að setja smjörið ofan í brauðið, gott að pensla fyrst yfir, opna svo raufarnar á brauðinu og hella smjörinu ofan í með matskeið, pensla svo aftur yfir.
- Saxið niður ferska steinselju og blandið saman við rifna ostinn, setjið ostablönduna vel inn í rákirnar á brauðinu, það er í góðu lagi þó svo að það sé einhver ostur ofan á brauðinu.
- Hyljið brauðið með álpappírnum, reynið að láta álpappírinn ekki snerta brauðið mikið svo osturinn klessist ekki allur við álpappírinn, en allt í lagi að það gerist smá. Bakið inn í ofni í 15 mín, opnið álpappírinn og bakið áfram í 5-10 mín til að fá fallegan lit á skorpuna.
- Setjið pizzasósu í skál.
- Berið fram á meðan brauðið er ennþá heitt með pizzasósunni og dýfið ostabrauðbröllunum ofan í pizzasósuna.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar