Dökkar súkkulaðibitakökur með hvítu súkkulaði
Dökkar súkkulaðibitakökur með hvítu súkkulaði
- 110 g smjör við stofuhita
- 85 g púðursykur
- 85 g sykur
- 1 egg
- 150 g hveiti
- 1 tsk matarsódi
- ½ tsk salt
- 20 g sælkerabaksturs kakóduft frá Nóa Síríus
- 1 msk mjólk
- 150 g sælkerabaksturs hvítir súkkulaðidropar frá Nóa Síríus
Aðferð:
- Þeytið saman smjör, púðursykur og sykur þar til blandan er orðin létt og ljós.
- Bætið egginu út í og þeytið áfram.
- Blandið saman hveiti, matarsóda og kakó, bætið út í deigið.
- Bætið mjólk út í deigið ásamt hvítum súkkulaðidropum og blandið saman.
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
- Mótið kúlur með matskeið úr deiginu, raðið á ofnplötu klædda bökunarpappír með góðu millibili og bakið í u.þ.b. 8-10 mín.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: