Extra djúsí enchiladas í hvítri sósu
Ef þú elskar enchiladas sem eru extra djúsí, creamy og bragðmiklar, þá er þessi réttur algjörlega málið. Mjúkar vefjur fylltar með kjúklingi, osti og svörtum baunum, baðaðar í silkimjúkri hvítri sósu og toppaðar með bráðnum osti, þetta er svona réttur sem hverfur á augabragði af borðinu.
Hvíta sósan, gerð með sýrðum rjóma frá Örnu Mjólkurvörum, heldur enchiladainu ótrúlega djúsí og gerir réttinn bæði mildan og algjörlega ómótstæðilegan. Fullkominn fjölskylduréttur, helgarmatur eða einfaldlega þegar þú vilt comfort food sem klikkar ekki










Extra djúsí enchiladas í hvítri sósu
- 3 stk kjúklingabringur
- 1 msk taco kryddblanda
- 400 g svartar baunir
- 200 g rifinn mozzarella
- 1 msk taco kryddblanda
- 6 vefjur
- 40 g smjör
- 30 g hveiti
- 500 ml vatn
- 3 tsk kjúklingakraftur
- 180 g sýrður rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
- Salt
- 15 g ferskt kóríander
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita. Kryddið kjúklingabringurnar og setjið í eldfastmót. Bakið inn í ofni í u.þ..b. 25 mín eða þar til þær eru eldaðar í gegn. Skerið svo niður í litla bita og setjið í skál.
- Skolið svörtu baunirnar og setjið ofan í skálina með kjúklingnum ásamt 100 g af rifnum osti og taco kryddblöndu.
- Skiptið kjúklingablöndunni niður á 6 vefjur, rúllið vefjunum upp og raðið í eldfast mót.
- Bræðið smjör í potti og bætið hveiti út á, hrærið þar til smjörbolla hefur myndast. Hellið 100 ml af vatni út á pottinn í einu og hrærið á milli þar til orðið kekklaust, endurtakið þar til 500 ml af vatni eru komin út í og mjúk kekklaus sósa hefur myndast. Slökkvið á hitanum undir pottinum.
- Setjið kjúklingakraftinn út í og hrærið, hellið sýrða rjómanum út í og bætið við meira salti eftir smekk. Hrærið öllu saman.
- Hellið sósunni yfir upprúlluðu vefjurnar í eldfasta mótinu og dreifið rifum osti yfir.
- Bakið inn í ofni í 20 mín eða þar til osturinn hefur bráðnað og byrjaður að gyllast.
- Skerið niður kóríander og dreifið því yfir.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












