Ferskt salat með parmaskinku, perum, brómberjum og litríkum sprettum
Í þessu ljúffenga salati fær hver einasta bragðtegund fær að njóta sín. Sæt pera, sölt parmaskinka, mjúkur brie ostur og safarík brómber mynda ótrúlega fallegt jafnvægi sem er bæði létt og bragðmikið.
Klettasalatið og litríku spretturnar frá Vaxa bæta ferskleika og stökkri áferð sem lyftir salatinu upp, á meðan furuhneturnar gefa milda hnetukeim og smá „crunch“. Smá góð ólífuolía og sjávarsalt er allt sem þarf til að draga fram bragðið og gera salatið fullkomið.
Þetta er svona réttur sem hentar jafnt sem fallegur forréttur eða sem hluti af veisluborði. Einfalt í framkvæmd og dásamlega gott á bragðið.
Þú finnur blöduðu spretturnar frá Vaxa hjá Pikkoló.




Ferskt salat með parmaskinku, perum, brómberjum og litríkum sprettum
- 30 g klettasalat frá Vaxa
- 1 pera
- 70 g parmaskinka
- 75 g brie ostur
- 30 g furuhnetur
- Brómber
- Blandaðar sprettur frá Vaxa
- Hágæða ólífu olía
- Smá gróft sjávarsalt
Aðferð:
- Dreifið klettasalati á fallegan disk.
- Skerið peru í þunna báta og raðið á diskinn.
- Rífið parmaskinkusneiðarnar í tvennt og raðið á diskinn.
- Skerið brie ostinn í litlar sneiðar og dreifið um allt ásamt furuhnetum og brómberjum.
- Klippið spretturnar og dreifið yfir diskinn.
- Hellið svolítið af ólífu olíu yfir og setjið örlítið af salti yfir.

Category:








