Linda Ben

Finn crisp með döðlum, hnetusmjöri og banana

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í a í samstarfi við ÍSAM

Stundum þarf snarl ekki að vera flókið til að vera bæði gott og næringarríkt. Þetta er ein af mínum uppáhalds samsetningum þegar mig langar í eitthvað einstaklega ljúffengt og fljótlegt sem gefur góða orku yfir daginn,  stökkt hrökkbrauð með döðlum, hnetusmjöri og banana.

Stökkt Finn Crisp hrökkbrauð er fullkominn grunnur fyrir svona álegg. Ofan á fer náttúruleg sæta úr mjúkum döðlum og banana ásamt kremkenndu hnetusmjöri sem gefur bæði góða fitu og prótein. Smá sjávarsalt og kanill setja svo punktinn yfir i-ið og draga fram bragðið í öllum hráefnunum.

Þetta er svona snarl sem er bæði fljótlegt, saðsamt og fullt af góðubragði. Fullkomið sem millimál eða þegar mann langar í eitthvað gott með kaffinu.

Finn crisp með döðlum, hnetusmjöri og banana

Finn crisp með döðlum, hnetusmjöri og banana

Finn crisp með döðlum, hnetusmjöri og banana

  • Finn Crisp hrökkbrauð
  • 2 ferskar/mjúkar döðlur
  • Hnetusmjör
  • Banani
  • Sjávarsalt
  • Kanill

Aðferð:

  • Takið steinana úr döðlunum og opnið þær, setjið ofan á hrökkbrauðið og smyrjið u.þ.b. 1 tsk af hnetursmjöri yfir.
  • Skerið banana í sneiðar og leggið ofan á hnetusmjörið, kryddið með smá sjávarsalti og kanil.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Finn crisp með döðlum, hnetusmjöri og banana

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5