Fjólublátt brokkolísalat er litríkt, ferskt og ótrúlega bragðgott salat sem hentar fullkomlega með hvaða máltíð sem er – sérstaklega á hátíðarborðið.
Þetta salat sameinar stökk brokkolíblóm, fínsaxað rauðkál, sætu frá trönuberjum og milda hnetukeim úr ristuðum furuhnétum. Sósan er silkimjúk blanda af sýrðum rjóma og mæjónesi, sem umlykur grænmetið án þess að gera það þungt.
Útkoman er salat sem er bæði létt, ferskt, næringarríkt og svakalega litfagurt – réttur sem lyftir allri máltíðinni upp og fær gesti til að spyrja: „má ég fá uppskriftina?“





Fjólublátt Brokkolísalat
- 1 stór brokkolíhaus
- 1/4 rauðkálshaus
- 1 rauðlaukur
- 70 g furuhnetur
- 70 g þurrkuð trönuber
- 1 msk eplaedik
- 180 g sýrður rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
- 2-3 msk mæjónes
- Salt
Aðferð:
- Skerið brokkolíið mjög smátt niður, passið að skera stilkana af brokkolíblómunum og nota bara blómin. Setjið í stóra skál.
- Skerið rauðkálið og rauðlaukinn smátt niður. Bætið út í stóru skálina ásamt furuhnetum og trönuberjum, eplaediki, sýrðum rjóma og 2 msk af mæjónesi.
- Hrærið öllu saman, kryddið til með salti og bætið við meira af mæjónesi ef ykkur finnst vanta.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar




