Oft er staðan sú að maður vill helst geta töfrað fram æðislega góðan rétt á sem allra fyrst. Þessi réttur er einmitt þannig. Hann er stútfullur af góðum brögðum sem passa vel saman, hann er léttur en á sama tíma djúsí. Það besta er að það tekur bara 25-30 mín að útbúa hann!
Rétturinn inniheldur lime, kóríander og chilli en sú blanda minnir mann svolítið á Suður Ameríku.
Endilega prófið og látið mig vita hvernig ykkur finnst!
Uppskrift:
- 4 kjúklingabringur
- Salt og pipar
- 1 msk ólífu olía
- 1 laukur, skorinn smátt niður
- 1 bolli kjúklingasoð
- 1 msk lime safi
- lítið búnt kóríander, skorið niður (u.þ.b. 1 msk)
- ½ tsk chilli krydd
- 1 dl rjómi
- 2 msk smjör
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC.
- Setjið kjúklingabringurnar í poka og berjið þær niður með kjöt hamari þannig að þær verði sléttar og um það bil 1 cm í þykkt.
- Kryddið þær með salt og pipar.
- Steikið bringurnar létt upp úr olíu þangað til þær hafa lokast fullkomlega en ekki eldaðar í gegn.
- Takið bringurnar af pönnunni og setjið þær í eldfast mót.
- Steikið laukinn á pönnunni.
- Bætið kjúklingasoðinu á pönnuna ásamt lime safanum, kóríander, chilli og rjómanum. Sjóðið saman.
- Bæti smjörinu út í sósuna til að fá gljáa.
- Hellið sósunni út á kjúklinginn og setjið inn í ofn í 20 mín eða þangað til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
- Skreytið réttinn með lime bátum og fersku kóríander.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu hana á Instagram með #lindulostæti
Njótið vel!
Ykkar, Linda Benediktsdóttir
Category: