Fljótlegur og góður fiskur og franskar
Þetta er svona réttur sem slær alltaf í gegn heima, einfaldur, í algjöru uppáhaldi hjá krökkunum og tekur aðeins 10 mín að útbúa.
Stökk ýsa í tempura með frönskum er klassík sem bæði krakkar og fullorðnir elska. Það besta er líka hvað þetta er þægilegt að útbúa. Þú getur eldað fiskinn í ofni, airfryer eða á pönnu, þannig að þetta hentar öllum, sama hvert getustigið er í eldhúsinu.
Ég notaði tempura ýsu frá Hnýfill og hún kom ótrúlega vel út! Stökk að utan, mjúk og safarík að innan og virkilega bragðgóð. Hnýfill er þekktur fyrir vandaðar afurðir og það skilar sér alveg í gæðunum hér.
Með stökkum frönskum og einfaldri tartar sósu sem tekur örfáar mínútur að gera verður þetta réttur sem er bæði kósý og fljótlegur, fullkominn á virkum dögum þegar maður vill eitthvað gott án mikillar fyrirhafnar.





Fljótlegur og góður fiskur og franskar
- 800 g ýsa í tempura frá Hnýfill
- Franskar
sósa
- 4 msk mæjónes
- 2 msk relish
- 1 msk kapers
- safi úr 1/2 sítrónu
- Salt og pipar
Aðferð:
- Kvrikið á ofninum og eldið franskarnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
- Hægt er að elda ýsuna í ofni, airfryer eða á pönnu og eru eldunarleiðbeiningar á umbúðunum fyrir allar aðferðir.
- Ég eldaði ýsuna í airfryer samkvæmt leiðbeiningum. Ég stillti hann á 200°C og hafði hann inni í 10 mín.
- Sósan er útbúinn með því að setja mæjónes, relish, kapers. sítrónusafa, salt og pipar í blandara og blanda saman í örfáar sek.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Fylgistu með á Instagram!
Fylgstu með á Tiktok!
Fylgstu með á Patreon!
Njótið vel!
Ykkar


Related