Simply Asia framleiðir hefðbundnar asískar matvörur, framleiddar í Asíu úr náttúrulegum hágæða hráefnum. Mikil ástríða fer í hverja vöru hjá þeim svo að við getum á auðveldan hátt eldað alvöru asískan mat heima hjá okkur.
Ég notaðist við venjulega pönnu þegar ég gerði þennan rétt einfaldlega vegna þess að ég á ekki wok pönnu, en ef þið eigið hana til þá klárlega notið þið hana. Með wok pönnu stjórnar maður betur hvað maður vill steikja því hitinn er mestur í botninum á pönnunni en minnstur upp við kantana. Þannig þarf maður mögulega ekki að taka kjúklinginn af pönnunni á meðan maður steikir grænmetið eins og ég gerði.
Fljótlegur og ljúffengur tælenskur “stir fry” réttur, uppskrift:
- 2 kjúklingabringur
- 1/2 pakki tælenskar núðlur úr brúnum hrísgrjónum
- 1 poki Simply Asia, Stir fry sósa, spicy kung pao
- 1 dós bambus
- 1 dós baby corn
- 1 gul paprika
- 1 lítil brokkolí haus
- 1 fljólublá gulrót
Aðferð:
- Byrjið á því að skera kjúklingabringurnar í bita stóra bita.
- Steikið þær upp úr olíu þangað til þær eru eldaðar í gegn (óþarfi að krydda bringurnar hér þar sem sósan gefur bragðið á eftir).
- Takið bringurnar af pönnunni og leggið til hliðar.
- Setjið vatn í pott og sjóðið.
- Opnið báðar dósirnar og hellið vatninu af.
- Skerið paprikuna og brokkolíið niður í litla bita.
- Steikið bambusinn, baby corn-ið, brokkolíið og paprikuna á pönnunni þangað til það er byrjað að brúnast svolítið.
- Á meðan grænmetið er á pönnunni þá ætti vatnið að vera farið að sjóða, þá setjið þitt núðlurnar í pottinn. Sjóðið þær þangað til þær eru orðnar linar en örlítið stökkar ennþá inní.
- Setjið kjúklinginn aftur á pönnuna ásamt sósunni og hrærið saman.
- Setjið núðlurnar á pönnuna og steikið þangað til þær eru tilbúnar og allt hefur blandast vel saman.
- Rífið fljólubláu gulrótina yfir réttinn.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu hana á Instagram með #lindulostæti
Njótið vel!
Ykkar, Linda Benediktsdóttir
Allar vörur sem fjallað er um í þessari færslu fást í Kosti.