Linda Ben

Franskur sinnepskjúklingur

Recipe by
20 mín
Cook: Unnið í samstarfi við ÍSAM | Servings: 4 manns

Franskur sinnepskjúklingur

Þessi franski sinnepskjúklingur er ein af þessum uppskriftum sem líta út og bragðast eins og þú hafir lagt í mikla vinnu, en eru í raun ótrúlega einfaldar. Safaríkur kjúklingur í silkimjúkri hvítvínsrjómasósu með grófu og dijon sinnepi. Þetta er klassísk samsetning sem klikkar aldrei. Sinnepið gefur sósunni dýpt og örlítið kikk, hunangið mýkir bragðið og hvítvínið færir ferskleika sem bindur allt fallega saman.

Þetta er svona réttur sem minnir á litla franska bistróa. Rétturinn er hlýr, notalegur og fullkominn þegar þú vilt gera aðeins meira úr kvöldmatnum án þess að hafa fyrir því. Kartöflumúsin með smjöri og rjóma tekur þetta svo upp á næsta level og dregur fram alla góðu bragðtónana úr sósunni.

Fullkominn réttur bæði fyrir helgarmatinn, matarboð eða einfaldlega þegar þig langar í eitthvað extra gott sem öll fjölskyldan á eftir að elska líka.

Franskur sinnepskjúklingur

Franskur sinnepskjúklingur

Franskur sinnepskjúklingur

Franskur sinnepskjúklingur

Franskur sinnepskjúklingur

Franskur sinnepskjúklingur

  • 700 g kjúklingalæri
  • Salt og pipar
  • 1 laukur
  • 3-4 hvútlauksgeirar
  • 2 dl hvítvín
  • 3 dl rjómi
  • 2 msk gróft Maille sinnep
  • 2 msk dijon maille sinnep
  • 1-2 tsk hunang
  • 1 tsk kjúklingakraftur
  • Feskt timjan

Borið fram með kartöflumús

  • 1 kg forsoðnar kartöflur
  • 150 g mjúkt smjör
  • 1 dl rjómi
  • Salt

Aðferð:

  1. Setjið kartöflurnar í pott og látið suðuna koma upp, leyfið kartöflunum að hitna vel í vatninu.
  2. Kryddið kjúklinginn með salt og pipar og steikið upp úr smá olíu þar til falleg gyllt húð hefur myndast, allt í góðu þó hann sé ekki eldaður alveg í gegn. Takið hann af pönnunni og geymið á disk.
  3. Skerið laukinn smátt niður og steikið á pönnunni, ekki þrífa pönnuna á milli.
  4. Rífið hvítlaukinn út á pönnuuna og steikið létt, bætið hvítvíninu og rjómanum út á pönnuna, ásamt grófu og dijon sinnepinu. Setjið smá hunang út á og kjúklingakraft, smakkið til með salti og pipar. Bætið ferska timjaninu líka út á og setjið kjúklinginn aftur á pönnuna, leyfið öllu að malla svolítið saman þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
  5. Setjið kartöflurnar í hrærivélaskál ásamt smjöri, hærið örstutt saman þar til samlagað. Bætið svo rjómanum og hrærið örstutt þar til samlagað, smakkið til með salti,
  6. Berið fram saman.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 Franskur sinnepskjúklingur

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5