Kokteill helgarinnar fagnar sko sannarlega sólríka haustinu!
Freyðivínskokteill sem fagnar haustinu
- 100 ml Prosecco
- 30 ml vodka
- ½ dl bláber
- Smá sítrónusafi (u.þ.b. 1 tsk)
- Smá sykur síróp (u.þ.b. 1 tsk)
- Lítil skvetta af Cointreau (u.þ.b. 2 tsk)
- Klakar
Aðferð:
- Setjið klaka og bláber í glas.
- Setjið næst vodka, sítrónusafa, sykursíróp, cointreu og fyllið svo upp með Prosecco.
Ef þú prófar þessa uppskrift, þá þætti mér svo vænt um að heyra hvernig smakkast! Skildu endilega eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Ykkar, Linda Ben
Category: