Þessi uppskrift hefur verið í fjölskuldunni minni frá því að ég man eftir mér. Mamma hefur gert þennan ís öll jól svo lengi sem ég man eftir mér, en með tobleróni í staðin fyrir konfekt.
Það er svo skemmtilegt að vinna sig áfram með skothelda uppskrift og því hef ég prófað nokkrar mismunandi útfærslur á þessum ís.
Þessi konfekt ísterta bragðast eins vel og hún lítur vel út. Hún er fáguð, afar bragðgóð og mun bræða hjörtu allra konfekt unnanda í jólaboðinu þínu!
Glæsileg konfekt ísterta sem allir geta gert!
- 6 eggjarauður
- 2 dl púðursykur
- 500 ml rjómi, létt þeyttur
- 1 kassi súkkulaðihúðað marsípan með hinberjum í appelsínulíkjör (220g)
- 1 stk marsípan stykki með nougat (40g)
- 1 stk marsípan stykki með koníaki (40g)
Sósa og skreyting
- 100 g hágæða súkkulaði
- 50 ml rjómi
- 3 stk appelsínulíkjör konfekt
- 1 dl trönuber
- 1 dl sykur
Aðferð:
- Setjið konfektið og trönuberin inn í ísskáp.
- Þeytið rjómann og geymið.
- Þeytið eggjarauðurnar og púðursykurinn mjög vel saman.
- Blandið rjómanum varlega saman við eggjarauðu blönduna með sleikju.
- Skerið kælda konfektið smátt niður og blandið saman við ísinn varlega með sleikju. Gott er að taka bitana strax í sundur um leið og þeir eru skornir svo þeir klessist ekki allir saman og blanda saman við ísinn í skömmtum.
- Hellið ísnum í form og setjið í frystinn, það er best að frysta ísinn í minnst 1 sólahring.
- Útbúið súkkulaðið með því að hita rjómann vel, setja súkkulaðið í skál og hella svo heitum rjómanum yfir, blanda saman með skeið þar til súkkulaðisósa myndast.
- Skerið hinberja konfektið til helminga niður.
- Takið trönuberin úr ísskápnum og setjið þau költ á disk og sykurinn strax yfir, hrærið í svo að sykurinn hjúpi þau öll.
- Setjið ísinn á kökudisk og fjarlægið formið, hellið súkkulaðinu yfir ísinn og dreifið konfektinu og trönuberjunum yfir. Þið gætuð þurft að halda konfektinu á sínum stað þangað til súkkulaðið stirnar.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: