Ég mæli með að kaupa tilbúinn greip safa út í búð, það sparar heilmikla vinnu, hella honum svo á fallega könnu og setja nokkar greip sneiðar í könnuna.
Þessi uppskrift miðast við 2 drykki.
Greip martíní
- 60 ml vodka
- 200 ml greip safi
- 30 ml cointreau
- 30 ml sykur síróp
Aðferð:
- Setjið mikið af klökum í kokteil hristara og í glösin sem verða notuð.
- Setjið öll innihaldsefnin í kokteilhristara og hristið vel saman.
- Hellið drykknum í glösin með klökunum.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category:
Hvar keyptiru tilbúin greip safa og mæliru með sérstöku sykur sýrópi ? 🙂
Hæhæ
Ég keypti greip safa í krónunni og það er einfaldast að búa til sykur síróp heima, 2 dl sykur á móti 3 dl vatni og sjóða þar til sykurkorninn hafa bráðnað 🙂