Gríðarlega góðar grillaðar grísahnakkasneiðar ásamt tómötum með burrata, bökuðum aspas og kartöflubátum. Þetta er alveg frábær máltíð fyrir grillveisluna.
Grillaðar grísahnakkasneiðar ásamt tómötum með burrata og bökuðum aspas
- Grísahnakkasneiðar með parmesan og svörtum hvítlauk frá SS
- Tómatar með burrata (uppskrift hér fyrir neðan)
- Aspas með parmesan (uppskrift hér fyrir neðan)
- Bakaðar kartöflur með timjan (uppskrift hér fyrir neðan)
Aðferð:
- Kveikið á grillinu og leyfið því að ná góðum hita.
- Grillið grísahnakkasneiðarnar á báðum hliðum þar til eldað í gegn.
Kartöflubátar með timjan
- Kartöflur
- Ólífu olía
- Sjávar salt
- timjan
Aðferð:
- Skerið kartöflurnar í báta og raðið á smjörpappírsklædda ofnplötu.
- Dreifið ólífu olíu, timjan og salti yfir.
- Bakið við 180°C í u.þ.b. 30-40 mín eða þar til mjúkt í gegn.
Bakaður aspas með parmesan
- Aspas
- Ólífu olía
- Sjávar salt
- Parmesan
Aðferð:
- Brjótið hörðu endana af aspasnum og raðið í eldfast mót.
- Dreifið ólífu olíu og salti yfir.
- Rífið vel af parmesanosti yfir og bakið við 180°C í 15 mín.
Tómatar með burrata
- 2 stórir buff tómatar
- 2 burrata ostur
- Fersk basilika
- Sjávar salt
- Ólífu olía
Aðferð:
- Skerið bufftómatana í sneiðar, u.þ.b. 1 cm þykkar sneiðar og raðið á bakka.
- Rífið burrata ostinn yfir tómata sneiðarnar. Dreifið ólífu olíu og salti yfir.
- Dreifið ferskri basiliku yfir.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: