Grillaðir bbq borgarar frá grunni
Grillaðir BBQ borgarar frá grunni
- 500 g nautgripahakk frá SS
- 75 g kryddostur með pipar
- 1 dl Stubbs sticky and sweet BBQ sósa + meira á tilbúna hamborgarana
- 1 msk Grill Mates Brown sugar bourbon krydd + meira á tilbúna hamborgarana
- Ostur
- Hamborgarabrauð
- Grænmeti eins og til dæmis salat, súrar gúrkur, tómata og papriku
Aðferð:
- Setjið hakkið í skál ásamt rifnum kryddosti, bbq sósu og kryddi. Hnoðið öllu vel saman og skiptið í 4 hluta, útbúið hamborgara úr hakkinu.
- Grillið hamborgarana á heitu grillinu, kryddið meira ef þið viljið og smyrjið sósu á hamborgana þegar þeir eru að verða tilbúnir, setjið ost yfir og látið hann bráðna.
- Raðið grænmetinu og kjötinu á hamborgarabrauðin.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: