High tea boð með Van Strien.
Van Strien Banketbakkers er hollenskt fjölskyldufyrirtæki með langa og stolta baksturshefð sem nær yfir eina og hálfa öld. Frá upphafi hafa þau lagt áherslu á handverk, gæði og klassískar uppskriftir – og það sést strax á kexkökunum þeirra, bæði í bragði og áferð.
Það sem gerir Van Strien kexkökurnar frábrugðnar hefðbundnu kexi er fyrst og fremst bakstursaðferðin og hráefnin. Kexið er bakað með ríkulegu magni af smjöri, eggjum og náttúrulegum bragðefnum – án óþarfa flýtimeðferða. Útkoman er kex sem er fullkomlega stökkt að utan, mjúkt að innan sem bráðna í munni. Þetta eru ekki bara kexkökur, heldur lítil baksturs handverk.
Van Strien hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir kexkökurnar sínar, þar á meðal margfaldar viðurkenningar á Great Taste Awards, þar sem bragð, gæði og áferð eru metin af óháðum fagmönnum. Slík verðlaun eru aðeins veitt vörum sem skera sig raunverulega úr og Van Strien gerir það aftur og aftur.
Þessar kexkökur eru fullkomnar í high tea uppsetningu: með góðu tei og léttu freyðivíni, paraðar með ostum, ferskum ávöxtum og fallegri borðsetningu. Þær henta jafnt í veislur, notaleg kaffiboð eða þegar þú vilt gera hversdagsstundina aðeins lúxuslegri.
Van Strien kexkökurnar fást í Hagkaup, Melabúðinni, Epal og Pipar & Salt, og eru skýr sönnun þess að alvöru handverk, hefð og gæði standast tímans tönn.
Van Strien Lemon Cookie er létt, stökk og fersk kexkaka með skýru sítrónubragði sem er hvorki of súrt né of sætt. Lemon Cookie er einstaklega fínleg í bragði, með mjúkri áferð að innan og fallegu jafnvægi sem gerir hana fullkomna með tei eða léttu freyðandi víni. Klassísk og elegant kexkaka sem hentar vel í high tea uppsetningu eða sem léttur endir á góðri máltíð.
Van Strien Kaas–uien er stökk og bragðmikil kexkaka með osti og lauk, fullkomin fyrir þá sem elska djúpt, salt bragð. Osturinn gefur kexinu ríkuleika á meðan laukurinn bætir við mildri sætu og karakter. Kaas–uien er frábær á ostabakka, með hvítvíni eða sem mótvægi við sætari kexkökur á borðinu.
Van Strien Kaasvlinders eru klassískar ostafiðrilda kökur sem eru stökkar, smjörkenndar og ótrúlega bragðgóðar. Kaasvlinders eru bakaðar með ríkulegu magni af osti sem gefur þeim bæði áferð og djúpt, hreint bragð. Þær eru einstaklega fallegar í framsetningu og henta vel með ostum, vínberjum og glasi af hvítvíni – algjör must-have í high tea eða veisluboð.
Van Strien Caramelvlinders er mjúkar og stökkar í senn, með fallegu karamellubragði sem minnir á klassískt smjörbakkelsi. Caramelvlinders eru sætar án þess að vera yfirþyrmandi og bráðna nánast í munni. Þær passa einstaklega vel með kaffi, chai-tei eða sem sætur punktur á borði með bæði sætum og söltum réttum.












High tea boð með Van Strien
Það sem ég bar fram:
- Van Strien Lemon cookie
- Van Strein Kaas-uien
- Van Strien Kaasvlinders
- Van Strien Caramelvlinders
- Gul melóna skorin í sneiðar
- Camember
- Dala hringur
- Parmesan
- Bláberjasulta
- Ólífur
- Rósa freyðivín
- Ávaxtate
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar





