Hindberja og sítrónu kanilsnúðar kanilsnúðar með berjaglassúr (mjólkur og eggjalausir)
Hér höfum frægu mjúku kanilsnúðana mína í skemmtilegum og sumarlegum hindberja og sítrónu búning og án mjólkurafurða og eggja.
Það kemur í ljós að egg eru alls ekki nauðsynleg í þessa uppskrift og því var því einfaldlega sleppt hér, en í staðin fyrir mjólkina er notað hafrajógúrt að grískum hætti með sítrrónu og hindberjum frá Veru Örnudóttir. Jógúrtið skilar sér í einstaklega mjúkum og bragðgóðum snúðum.
Hindberja og sítrónu kanilsnúðar (mjólkur og eggjalausir) kanilsnúðar með berjaglassúr (mjólkur og eggjalausir)
- 7 g þurrger
- 180 ml volgt vatn
- 170 ml Hafrajógúrt að grískum hætti með hindberjum og sítrónu frá Veru Örnudóttir
- 80 g brætt jurta/vegan smjör/kókosolía
- 450 g hveiti
- ½ dl sykur
- 1 tsk salt
Fylling
- 120 g mjúkt jurta/vegan smjör/kókosolía
- 2 dl sykur
- 2 msk kanill
Hindberja og sítrónu glassúr
- 400 g flórsykur
- 2 dl frosin hindber (afþýdd og sigtaður safinn frá)
- 3 msk vegan rjómaostur
- Börkur af sítrónu
Aðferð
- Byrjið er á að setja hafrajógúrt í skál, hitið vatnið að suðu og hellið út í jógúrtið, blandð saman. Bætið gerinu útí og hrærið, leyfið að standa í smá stund.
- Setjið hveitið í skál, bætið út í það sykrinum og saltinu.
- Bræðið jurta smjörið, leyfið því að kólna svolítið.
- Hellið jógúrt-gerblöndunni út í hveitið og hrærið, hellið brædda smjörinu einnig út í á meðan deigið hnoðast.
- Látið deigið hefast í 1 klst eða þangað til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
- Þegar deigið hefur hefast, dreifið þá svolítið af hveiti á borðið, takið deigið úr skálinni og fletjið það út í um það bil 20×40 cm flöt.
- Blandið saman mjúku vegan smjöri, sykri og kanil í skál, hrærið þar til blandað saman. Smyrjið fyllingunni yfir allt deigið.
- Rúllið svo upp deiginu frá 40 cm endanum í lengju og skerið hana svo í 12 – 15 bita.
- Smyrjið frekar stórt eldfast mót með smjöri og raðið snúðunum ofan í formið, það má vera frekar rúmt á milli snúðanna því þeir eiga eftir að stækka.
- Leggið hreint viskustykki yfir formið og látið snúðana hefast í um það bil 30 mín.
- Stillið ofninn á 175°C og undir og yfir hita.
- Setjið snúðana í ofninn og látið bakast í 35-45 mín (tími fer eftir hversu þykkir snúðarnir eru) eða þangað til þeir eru orðnir fallega gullnir á litinn.
- Setjið frosin hidber í pott og afþýðið þau í potti við vægan hita, passið að vökvinn gufi ekki upp. Setjið í sigti og sigtið safann frá.
- Setjið flórsykur, rjómaost og 3 msk af hindberjasafa í skál, blandið saman og smyrjið á snúðana. Rífið börkinn af sítrónui yfir kremið. Dreifið ferskum berjum yfir.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar