Linda Ben

Hindberja ostakaka með brownie botni og Nóa kroppi

Recipe by
9 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Nóa Siríus | Servings: 24 bitar (u.þ.b. 5x5 cm hver)

Hindberja ostakaka með brownie botni og Nóa kroppi

Þessi hindberja brownieostakaka er eitthvað annað góð!

Browniebotninn er seigur, þéttur og klístraður. Hann búinn til úr 70% súkkulaði sem gerir það að verkum að hann er örlítið rammur og ríkur af súkkulaðibragði. Hann tónar alveg svakalega vel við mjúku, sæt-hindberjasúru ostakökuna sem er með stökku Nóa Kropp súkkulaði.

Þessi kaka hentar mjög vel í veislur. Hún er frekar stór, 40×30 cm og gefur u.þ.b. 24 bita sem eru u.þ.b. 5×5 cm stórir hver. Það er sniðugt að skera hana í ennþá minni bita ef hugmyndin er að fólk eigi að geta gripið sér kökubita án þess að þurfa að nota disk og gaffal.

Það er upplagt að gera þessa köku með ágætis fyrirvara þar sem hún er geymd í frysti. Þannig ef þú ert eins og ég, vilt undirbúa veislur með fyrirvara til þess að vera ekki í stressi á veisludeginum sjálfum, þá er þetta kaka sem þú ætti að vista hjá þér.

Hindberja ostakaka með brownie botni og Nóa kroppi

Hindberja ostakaka með brownie botni og Nóa kroppi

Hindberja ostakaka með brownie botni og Nóa kroppi

Hindberja ostakaka með brownie botni og Nóa kroppi

Hindberja ostakaka með brownie botni og Nóa kroppi

  • 180 g smjör
  • 300 g sykur
  • 200 g 70% súkkulaði
  • 150 g hveiti
  • 40 g kakó
  • 4 egg
  • 500 ml rjómi + 200 ml til að skreyta
  • 400 g rjómaostur
  • 2 dl frosin hindber
  • 200 g flórsykur
  • 200 g Nóa Kropp
  • 150 g fersk hindber

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið smjör og sykur í pott, hitið rólega svo smjörið bráðni. Haldið áfram að hita blönduna og leyfið henni að malla varlega í nokkrar mínútur eða þar til sykurkornin eru aðeins farin að minnka og blandan orðin meira sírópskennd. Takið af hitanum og leyfið blöndunni að kólna svolítið.
  3. Setjið hveiti og kakó saman í skál.
  4. Hellið smjör og sykurblöndunni í skál, setjið suðusúkkulaðið ofan í skálina og hrærið þar til súkkulaðið hefur bráðnað saman við.
  5. Bætið eggjunum út í blönduna og hrærið.
  6. Bætið hveiti og kakó út í og hrærið.
  7. Setjið smjörpappír í 40×30 cm stórt form (eða álíka stórt) og hellið deiginu í formið. Bakið í u.þ.b.20 – 30 mín (tími fer eftir hversu stórt form þið notið) eða þar til stökk himna hefur myndast yfir kökunni og endarnir eru bakaðir í gegn (kakan er ennþá klessuleg inn í miðjunni).
  8. Kælið kökuna.
  9. Hrærið saman rjómaost og flórsykur.
  10. Setjið frosin hindber í pott, afþýðið berin varlega og merjið þau (notið lágan hita svo safinn sem myndast, gufi sem minnst upp). Hellið berjamaukinu ofan í sigti og sigtið fræin frá safanum. Kælið safann og hellið svo ofan í rjómaostablönduna, blandið saman við.
  11. Þeytið 500 ml rjóma og veltið honum varlega saman við rjómaostablönduna með sleikju.
  12. Hellið Nóa Kroppinu út í rjómaostablönduna og blandið honum saman við deigið, hellið því ofan á kaldan brownie botninn. Setjið í frysti í a.m.k. 8 klst.
  13. Takið kökuna úr frystinum og skerið hana í 24 bita.
  14. Þeytið 200 ml rjóma og sprauið rjóma ofan á hvern bita. Skreytið með ferskum hindberjum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Hindberja ostakaka með brownie botni og Nóa kroppi

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5