Linda Ben

Hindberja sour kokteill

Recipe by
10 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes | Servings: 1 drykkur

Það er eitthvað ómótstæðilegt við vel gerðan sour kokteil. Ferskleikinn, jafnvægið á milli sætu og sýru og þessi fallega froða sem myndast ofan á. Þessi hindberjaútgáfa er einstaklega ljúffeng. Djúpur hindberjasafi gefur drykknum bæði fallegan lit og náttúrulega sætu, á meðan sítrónusafinn heldur honum ferskum og léttum.

Tequila og Cointreau skapa mjúkan grunn sem passar fullkomlega með hindberjunum, og eggjahvítan gefur drykknum silkimjúka áferð sem gerir hann eins og úr góðum kokteilbar. Þetta er svona drykkur sem lítur út eins og af alvöru kokteilbar, en er ótrúlega einfaldur að útbúa heima.

Fullkominn fyrir vinkonukvöld, brunch eða þegar þú vilt gera eitthvað aðeins meira úr augnablikinu

Hindberja sour kokteill

Hindberja sour kokteill

Hindberja sour kokteill

Hugmyndir fyrir stelpukvöldið – kokteilar, ostabakki og einfalt veisluborð

Hindberja sour kokteill

  • 30 ml tequila los tres tonos
  • 30 ml Cointreau
  • 45 ml hindberjasafi (frosin hindber brædd og safi sigtaður frá)
  • 15 ml sítrónusafi
  • 1 eggjahvíta
  • Klakar
  • Hindber og fersk mynta sem skraut

Aðferð:

  1. Setjið frosin hindber í pott (magn fer eftir hversu marga drykki þú ætlar að gera),  bræðið þau á vægum hita svo safinn gufi ekki upp. Pressið þau í gegnum sigti til að ná öllum safanum úr þeim.
  2. Setjið tequila, Cointreau, hindberjasafa, sítrónusafa, eggjahvítu og klaka í kokteilhristara og hrisstið mjög kröftuglega saman í u.þ.b. 2 mín.
  3. Hellið drykknum í kælt kokteilglas í gegnum sigti.
  4. Skreytið með fersku hindberi og ferskri myntu.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5