Hindberjafylltar stórar muffins
Hindberjafylltar stórar muffins
- 500 g Linda Ben Ljúffeng vanillukaka þurrefnablanda
- 3 egg
- 150 g brætt smjör/150 ml bragðlítil olía
- 1 dl vatn
- St. Dalfour hindberjasulta
- Hindber (fersk eða frosin)
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
- Setjið vanillu þurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, bræddu smjöri/olíu og vatni, hrærið öllu vel saman þar til samlagað.
- Setjið stór muffinsform í bollakökuálbakka og setjið botnfylli af kökudeigi í hvert form. Setjið 1 tsk af sultu í hvert form og 1 hindber. Fyllið upp 2/3 formanna með deiginu.
- Bakið kökurnar í u.þ.b. 15 mín eða þar til þær eru bakaðar í gegn (fer eftir hversu stór form voru notuð).
- Sigtið flórsykur yfir kökurnar.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: